Jósa og Hera tóku að sér sameiginlega hótelstjórn
Vinkonurnar Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir (Jósa) og Hera Sigurðardóttir hafa verið samstarfsfélagar til margra ára á sumrin á Hótel Flatey. Þær segja Flatey vera orkustöð sem endurnýjar þær á hverju sumri og að þær séu orðnar háðar samlífinu þar við menn og dýr. Í gær lokuðu þær hótelinu að sinni og náðist tal af þeim á leið til Reykjavíkur.
Blaðamaður spyr: Hvers vegna Flatey stelpur? Þær svara í kór: „Hefur þú ekki komið í Flatey?“ Það er augljóst að þeim Heru og Jósu finnst svarið við þessari spurningu liggja í augum uppi um leið og stigið er fæti á eyjuna. Blaðamaður jánkar og segist skilja hvað þær eigi við, en fyrir hina sem ekki hafa komið í Flatey, hvers vegna?
„Það er ávanabindandi að vera í Flatey, þar er allt svo einfalt og allt svo fallegt. Það er ekkert annað til en heimurinn í Flatey. Maður gleymir því að maður eigi eitthvert annað líf,“ segir Jósa sem starfar sem kokkur á hótelinu. Hera hefur verið í herbergisræstingum og móttöku en í sumar tóku þær einnig að sér sameiginlega hótelstjórn.
„Ég upplifi þetta þannig að ég hitti sjálfa mig mjög sterkt í Flatey. Það er ekkert áreiti og það er enginn filter á milli fólks og náttúrunnar og þar af leiðandi ekki heldur á mann sjálfan. Maður kjarnar sig ómeðvitað. Eyjan er orkustöð því allt er svo hreint og sjálfbært. Þarna er verið að búa til orku sem er full af ástúð. Það er ekkert sem truflar. Þú bara horfir í augun á öllum og hleðst. Þú átt stutt samtal við einhvern og þú endurnærist.“
Jósa og Hera skiptast á að lýsa tilfinningum sínum til eyjunnar en engin lýsingarorð virðast nægilega sterk.
Eru þið ættaðar úr Flatey eða hvernig kemur það til að þið myndið svona sterka tengingu við eyjuna?
„Ég var 26 ára og nýbúin að frétta að ég yrði að halda leiguíbúð í miðbænum fram yfir sumarið. Ég sá fram á að vera í Reykjavík heilt sumar og fékk af þeim sökum öskurgrenjukast enda óbærileg tilhugsun að það væri grænt gras og fuglar úti um allt land meðan ég yrði að vera í miðbænum. Á þessu augnabliki fékk ég símtal um að það vantaði fólk í vinnu á Hótel Flatey. Ég bara fór! Skildi íbúðina mína eftir tóma í Reykjavík og hef síðan ekki gert neitt annað á sumrin. Bara það segir rosalega mikið,“ segir Jósa sem hefur starfað í Flatey undanfarin 10 ár og hefur því helmingi fleiri sumur á vinkonu sína Heru sem er alveg jafn gjörsamlega fallin fyrir eyjunni.
En hvernig er lífið í eyjunni?
„Lífið snýst mikið um hótelið og hótelreksturinn. Fólk á þrítugsaldri laðast í störf á hótelinu og á það sameiginlegt að njóta þess að vera þarna. Það eru allir komnir til þess að vera í Flatey númer eitt, og númer tvö að vinna á hótelinu. Það myndast alltaf svo falleg stemning í þessum hópi. Fjölmargir koma aftur og aftur og það gerir þetta líka svo einfalt. Það þarf ekki að kenna neinum neitt og allir kunna allar reglurnar.“
Margir gera sér sennilega ekki grein fyrir því að hótelrekstur á pínulítilli eyju á Breiðafirði er örlítið flóknari en annar hótelrekstur. Þar er ekki mikið aðgengi að hreinu vatni og panta þarf allar vörur úr landi með nokkurra daga fyrirvara.
„Já, þetta er aðeins flóknari rekstur en á öðrum stöðum og vissulega meira mál að nálgast vörurnar. Það tekur til dæmis þrjá daga að fá grænmeti frá Reykjavík. Allt lín er sent upp á land í þvott og það þarf að bera það út í bát. Starfsfólkið sefur oft í flatsæng og þarf stundum að skipta um næturstað. Þetta er því aðeins meira mál en á flestum öðrum stöðum, en það gerir þetta jafnframt svo skemmtilegt.“
En starfið á Hótel Flatey er árstíðabundið og fáir sem búa þar og starfa árið um kring. Nú hverfa vinkonurnar til annarra starfa um stund. Jósa heldur norður á Akureyri þar sem hún ætlar að leika í trúðasýningunni Helgi magri hjá Menningarfélagi Akureyrar á meðan Hera fer á Hala í Suðursveit þar sem hún hefur ráðið sig til starfa á öðru hóteli.
„Ég er búin að ráða mig en hef aldrei komið þangað. Ég er bara að fara í aðra sveit. Úr sveit í sveit!“ segir Hera að lokum og það leynir sér ekki að stelpurnar eru meyrar og þakklátar, sáttar við sumarið og fullar af orku. Þótt við vitum ekki hvað framtíðin ber í skauti sér ætti ekki að koma neinum á óvart að rekast á þær stöllur, Jósu og Heru, á Hótel Flatey næsta sumar.