Eyrún Þóra stefnir að því að fá erlend lið til landsins
Fyrir fjórum árum fékk Eyrún Þóra Guðmundsdóttir í hendur kynningarefni um Hjólaskautaat (Roller derby) á Íslandi. Hjólaskautaat er jaðaríþrótt sem hefur á undanförnum áratugum verið að ryðja sér til rúms úti í heimi. Eyrún Þóra ákvað að slá til og mætti á æfingu ásamt vinkonum sínum. Hún kolféll fyrir sportinu og hefur stundað það af kappi síðan.
Eyrún Þóra er 25 ára þjóðfræðinemi og starfar sem landvörður í Skaftafelli í sumar. Áður en hún byrjaði í hjólaskautaati hafði hún ekki æft íþróttir að ráði en hafði hug á að byrja að stunda einhvers konar hreyfingu. Hana grunaði þó ekki að jaðaríþróttagrein ætti eftir að leika stórt hlutverk í lífi hennar né að hjólaskautaat yrði hennar helsta áhugamál og ástríða.
„Fyrir fjórum árum fór ég í Hinsegin gönguna með vinkonum mínum. Þar voru stelpur að dreifa kynningarefni um Roller derby á Íslandi og vinkonur mínar urðu afar spenntar fyrir þessu. Ég var meira að hugsa að mig langaði til þess að fara að æfa eitthvað og ákvað að slá til vegna þess að vinkonur mínar voru svona áhugasamar. Í dag eru þær allar hættar og ég er komin á fullt í þetta.“
Hjólaskautaat er nýyrði yfir Roller derby á íslensku. Hingað til hefur félagsskapurinn kallað sig Roller Derby Ísland en nú verður breyting þar á.
„Já, það er gaman að segja frá því að íþróttin er það ný hérlendis að við vorum bara að taka upp þetta nafn „hjólaskautaat“. Innganga í ÍSÍ (Íþróttasamband Íslands) hefur meðal annars strandað á því að ekki var til íslenskt heiti yfir íþróttagreinina. Við óskuðum þess vegna eftir áliti frá Árnastofnun sem komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri besta orðið. Nú heitir þetta ekki lengur Roller Derby Iceland heldur hjólaskautaat.“
Lítið hefur borið á hjólaskautaati eða keppnum því tengdu á Íslandi og fáir sem kannski átta sig á því út á hvað þetta gengur. Er hægt að segja frá því í einföldu máli?
„Já, þetta er svokölluð jaðaríþrótt þar sem leikmenn spila á hjólaskautum. Hópíþrótt þar sem fimm skautarar spila saman í einu og keppt er á sporöskjulaga braut. Einn í liðinu er kallaður „Jammer“ og svo eru fjórir svokallaðir „Blokkerar“. Jammerinn er með stóra stjörnu á hjálminum og skorar stig fyrir liðið sitt með því að hringa (innskot blaðamanns: skauta einum hring meira en hinir í brautinni) aðra skautara úr hinu liðinu. Blokkerarnir mynda veggi á brautinni til að koma í veg fyrir að Jammerinn úr hinu liðinu nái að komast að þeim og hringa þá. Svo er þetta sýning sem gaman er að fylgjast með því hver spilari á sitt keppnisnafn og margir spila með einkennismálningu í andliti. Áður fyrr var keppt í kjólum, tjútjúpilsum, netasokkabuxum, hnéháum sokkum og stuttum stuttbuxum. Undanfarin ár hefur þetta verið að breytast í íþróttamannslegri klæðnað og er það liður í því að fá viðurkenningu á sportinu.“
Eyrún Þóra segir menninguna í kringum hjólaskautaatið einstaka og sérlega skemmtilega. Þá koma liðsfélagarnir að öllum hliðum er tengjast sportinu sem framkallar mikla ástríðu.
„Þetta er ólíkt öllum öðrum íþróttum enda erum við að gera allt sjálfar. Ég hef til dæmis verið að skipuleggja það að fá lið frá útlöndum til Íslands því við höfum enga til að keppa við. Sem betur fer er Ísland í tísku svo allir vilja koma hingað. Svo hefur þetta hingað til fyrst og fremst verið kvennasport og aðallega konur sem keppa í því. Það er þó eitthvað að breytast og karlar farnir að sýna þessu meiri áhuga.“
Eyrún Þóra talar af mikilli innlifun og augljóst að áhuginn er mikill. Hún hvetur alla forvitna til þess að kynna sér byrjendanámskeið haustsins og kýla á þetta.
„Í dag æfum við í Kórnum í Kópavogi tvisvar sinnum í viku og það eru 14 keppendur í liðinu, allt stelpur. En það er stefnan að stofna fleiri lið, við erum til dæmis búnar að stofna lið sem keppir á Eurocup í september en þar keppa íslenskar stelpur sem æfa og keppa erlendis fyrir okkar hönd. Svo er hugmyndin að stofna fljótlega blandað lið sem getur þá keppt á móti öðrum blönduðum liðum.“
Að lokum bendir Eyrún Þóra á að hægt sé að nálgast frekari upplýsingar á Facebook-síðunni Roller Derby Iceland og á heimasíðunni rollerderby.is. Byrjendanámskeið hefjast í september.