fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Ekki allir sáttir við vistaskiptin í Viðreisn

Þorgerður Katrín var vonarstjarna Sjálfstæðisflokksins – Vinnur að auknu frjálslyndi

Ritstjórn DV
Laugardaginn 17. desember 2016 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er snúin aftur á svið íslenskra stjórnmála og það með miklum gusti. Þorgerður yfirgaf sviðið árið 2013 en hafði fyrir þann tíma verið ein helsta vonarstjarna Sjálfstæðisflokksins, ráðherra og varaformaður hans. Hrunið og eftirmálar þess ollu því að Þorgerður leit svo á að tíma sínum í stjórnmálum væri lokið en heillaðist af stefnu nýs framboðs, Viðreisnar, og ákvað að taka slaginn. Viðreisn náði miklum árangri í kosningunum, ekki síst Þorgerður sem kjörin var 4. þingmaður Suðvesturkjördæmis. Hún boðar ný stjórnmál, aukið frjálslyndi og samvinnu og segir að við lifum ótrúlega áhugaverða tíma í íslenskri pólitík.

Þorgerður segir pólitík mikið hafa verið rædda á sínu æskuheimili. „Ég er alin upp á krata-, kvennalista- og kvenréttindaheimili. Ég var alltaf að reyna að sannfæra pabba um að Sjálfstæðisflokkurinn væri stærsti jafnaðarmannaflokkur Íslands, til að reyna að fá hann til að kjósa flokkinn. Þá var rúm fyrir mjög fjölbreyttar skoðanir í Sjálfstæðisflokknum.“

En ekki í dag?
„Nei, minna.“

Þorgerður Katrín var kjörin á þing árið 1999 og var gerð að ráðherra menntamála í lok árs 2003. Hún varð síðan varaformaður Sjálfstæðisflokksins árið 2005.

Þetta er nokkuð skjótur framgangur, þú nærð mjög langt innan flokksins. Ertu sátt við tíma þinn þar þegar þú lítur til baka?
„Já, mér leið vel þar, þetta var góður tími og ég kynntist mörgu góðu fólki. Í dag sé ég hvað var raunverulegt í því, hverjir eru vinir manns og hverjir ekki. Að mínu mati velur maður ekki vini eftir stjórnmálaskoðunum og ég á marga góða vini sem eru með aðrar hugsjónir en ég.“

Þú verður vör við það núna, eftir að þú gengur til liðs við Viðreisn, að það eru ekki allir sáttir?
„Já, ég verð það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi