Munaði bara þremur árum – Þurfti að fá annan kennara til að fara yfir verkefnin
Flestir muna eflaust eftir Sævari Helga Bragasyni sem varð, nánast á einni nóttu, hálfgerð almenningseign og andlit sólmyrkvans árið 2015. Hann er maðurinn sem kom því í verk að þúsundir íslenskra grunn- og leikskólabarna fengu tækifæri til að fylgjast með þessum merkilega náttúruviðburði. Hann uppskar mikið skítkast fyrir og var meðal annars sakaður um mannréttindabrot.
Sævar er formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Hann kennir stjörnufræði í MR og er höfundur bókarinnar Stjörnuskoðun sem kemur út í næsta mánuði. Sævar verður með innslög í Stundinni okkar í vetur um vísindi auk þess sem hann er reglulegur gestur í Morgunútvarpi Rásar 2. Að auki heldur Sævar reglulega fyrirlestra úti um allar trissur, tekur þátt í alþjóðasamstarfi og fræðir ferðamenn um norðurljós þegar veður leyfir. Sævari er mikið í mun að fræða börn um mikilvægi vísinda, vekja þau til umhugsunar um stjörnufræði og hvetja þau áfram.
Sævar, sem er 32 ára, og þáverandi sambýliskona hans, Inga Rún Helgadóttir, eiga soninn Arnór Braga sem er sex ára. Fyrst eftir að upp úr slitnaði árið 2013 og þar til í sumar skiptust þau vikulega á að vera með drenginn. Eftir að Arnór Bragi byrjaði í skóla í haust hefur þó dregið úr umgengninni þar sem Sævar býr í Hafnarfirði en sonur hans í Mosfellsbæ.
„Það er brjálað að gera hjá honum við að leika vini sína og svoleiðis. Á meðan ég get ekki búið nær þá fylgist ég með af hliðarlínunni og fæ að njóta hans um helgar.“
Aðspurður hvort sonurinn deili sama áhugamáli og faðir hans svarar Sævar: „Arnór Bragi er stórkostlegur karakter. Forvitinn, mikill Star Wars-aðdáandi og tölvuleikjakall. Ég vona að hann verði nörd því þá bíður hans björt framtíð.“
Þegar talið berst nánar að ástinni, og hann er inntur svara við persónulegri spurningum, fer Sævar í algjöran hnút. Hann segist vera lokuð týpa og viðurkennir að sér þyki mjög erfitt að tala um sambandsmál þar sem hann fari sjálfur alveg í kerfi þegar eitthvað slíkt er í gangi. „Ég get auðveldlega talað uppi á sviði fyrir þúsund manns en þegar kemur að því að nálgast hitt kynið er ég alveg út úr korti.“
Þá segir Sævar að sökum þessa sé hann ekki mikið að „deita“: „Ég er svo afskaplega lélegur í þessu. Kannski vantar mig bara góðan vængmann.“
Sævar og barnsmóðir hans eru góðir vinir en þegar blaðamaður segir að hann geti nú varla verið alveg vonlaus þar sem hann eigi sjö ára samband að baki þá segir hann einfaldlega: „Hún náði í mig.“
Síðan segir hann frá því hvernig hann kynntist Ingu Rún. Árið 2006, mánuði eftir að hann byrjaði fyrst að kenna í MR, byrjuðu þau að hittast en hún var nemandi hans.
„Hún var á lokaárinu og ég var 22 ára svo aldursmunurinn á okkur var bara þrjú ár. Það vissu allir af þessu en enginn skipti sér neitt sérstaklega af því. Það eina sem breyttist var að ég fékk annan kennara til að fara yfir verkefnin hennar.“
Sævar segist alltaf bjóða nemendum sínum í stjörnuskoðun en þar upphófst ástarævintýrið. „Hún bað um far með mér í stjörnuskoðunina. Ég spáði ekkert frekar í það og sótti hana. Eitt leiddi af öðru og það tók ekki nema nokkra daga fyrir okkur að smella saman.“
Líkt og áður segir slitnaði upp úr sambandinu en Sævar kveðst þakklátur fyrir þann tíma sem þau áttu saman og soninn sem skiptir þau meira máli en allt annað í lífinu.