Andrés Jónsson almannatengill upplýsti á morgunfundi með 100 forsvarsmönnum ríkistofnana að forstjóri ríkistofnunar hefði nýlega haft samband við hann og spurt hvort það væri í lagi að hann keypti sér Range Rover-jeppa. Að því er mbl.is greinir frá hugðist forstjórinn nota eigið fé til kaupanna en vildi vita hvort það myndi líta illa út fyrir hann.
Andrés spurði salinn hvað hvað þeir hefðu ráðlagt viðkomandi og virtust flestir gefa til að kynna að þeir myndu ráða forstjóranum frá því. Sagði Andrés það ekki skrýtið enda væri líklegt að fyrirsögnin „Forstjóri X ekur um á Range Rover“ myndi birtast í einhverjum fjölmiðlanna. Af því má ráða hvaða svör ríkisforstjórinn með Range Rover-kvíðann fékk hjá Andrési.