fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fókus

„Líkaminn lætur mig dansa“

Luis Lucas Antónió Cabambe setur markið hátt

Ritstjórn DV
Mánudaginn 15. ágúst 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Luis Lucas Antónió Cabambe var þriggja og hálfs árs flutti hann frá Angóla til Íslands ásamt einstæðri móður sinni. Síðar áttu þau mæðginin eftir að búa víðs vegar um landið og segir Luis þá reynslu helstu skýringuna á því hvað hann er félagslega sterkur og fær um ótrúlega margt sem tengist íþróttum og listum. Í dag er Luis gagntekinn af streetdance og sækir danstíma í Danmörku og Svíþjóð hjá mjög færum dönsurum.

Félagslega sterkur

„Mér hefur alltaf þótt mjög fínt að flakka svona á milli staða. Ég ólst til dæmis upp á Stokkseyri, Selfossi og í Reykjanesbæ. Mér finnst gaman að kynnast nýjum aðstæðum og öðlast mismunandi reynslu. Ég á auðvelt með að kynnast nýju fólki og held að allir þessir flutningar hafi haft áhrif á það hvað ég er sterkur félagslega í dag. Það voru mismunandi frístundir í boði alls staðar og í gegnum tíðina hef ég æft borðtennis, taekwondo, körfubolta, ballett, handbolta og blak. Í dag æfi ég fótbolta og fimm mismunandi stíla af street-dönsum þ.e. popping, hiphop, dancehall, house og toprock,“ segir Luis sem er 17 ára gamall menntaskólanemi og búsettur í Breiðholtinu.

Luis er einn af þeim sem ekkert mega snerta án þess að verða bestur þótt hann kunni ekki við að staðfesta þá staðreynd sjálfur. Hann er framúrskarandi fótboltamaður og hefur fengið ótal tækifæri sem dansari.

„Ég segi nú ekki að ég verði bestur í öllu strax en ég er mjög fljótur að læra og mér hefur gengið vel í þeim íþróttum sem ég hef prófað hingað til. Það hjálpar mér að vera ófeiminn og ekki hræddur við það sem er nýtt og óþekkt. Svo held ég að ég sé bara með eitthvað í genunum sem vinnur með mér í þessum efnum.“

Hann lýsir því að honum hafi alltaf fundist sem líkami hans hafi kallað á útrás í gegnum dans en að hann hafi aldrei fundið rétta dansstílinn til þess að koma þessum hvötum til skila fyrr en hann kynntist popping.

„Ég hef alltaf fundið eitthvað í líkamanum mínum sem lætur mig fara að dansa. Það er tilfinning sem segir mér að gera eitthvað ómannlegt þegar ég heyri réttu taktana. En það skrítna er að ég vissi bara ekki hvernig ég gæti fengið almennilega útrás fyrir þessa tilfinningu. Ég hef prófað marga dansstíla og æfði til dæmis ballett í eitt ár en þegar ég kynntist dansi Brynju Péturs og byrjaði að hallast aðallega að popping og hiphop þá small eitthvað. Ég man upp á dag hvenær þetta var því það kom bara eitthvað fyrir mig þegar ég komst í tæri við þennan stíl. Þetta var 11. september 2014 og ég hef ekki hætt síðan.“

Popping er sérstakur dansstíll sem gengur út á að einangra hreyfingar í hverjum líkamshluta og mynda dans út frá hreyfingunum. Margir þekkja þennan stíl sem vélmennadansinn þar sem hreyfingar minna á rafbylgju sem ferðast í gegnum vöðva líkamans.

Stefnir mikið lengra

„Það má segja að popping tilheyri hiphop og flestir stærstu dansararnir í dag koma upprunalega frá hiphop. Þegar keppt er í popping er notað sama fyrirkomulag og í hiphop, þ.e.a.s. svokölluð einvígi þar sem tveir einstaklingar eða hópar fara út á dansgólfið andspænis hvor öðrum og dansa oftast í 30–40 sekúndna lotum. Dómarar sitja fyrir miðju og dæma hvor hópurinn stendur sig betur. Ég hef verið að taka þátt í svona litlum einvígum en stefni mikið lengra.“

Um þessar mundir er Luis í Svíþjóð og Danmörku þar sem hann hefur m.a. sótt danstíma hjá þekktum hiphop/house-dönsurum og tekur þátt í nokkrum einvígum.

„Já, ég er staddur í Malmö og fór yfir til Kaupmannahafnar þar sem ég hitti ótrúlega hæfileikaríkt fólk sem ég ætla að halda áfram að æfa með. Ég fór meðal annars í tíma hjá Marie Kaae sem hefur unnið keppnir í Evrópu og Asíu og er mikils metin í húsdanssenunni um allan heim.“ Áhuginn leynir sér ekki í augum Luis en það er forvitnilegt að vita hvað þessi hæfileikaríki drengur muni hafa atvinnu af í framtíðinni.

Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?

„Þarna hittir þú á veika blettinn minn,“ segir Luis og hlær en bætir við: „Það eina sem ég get sagt er að það verður að fá að koma í ljós þegar ég er orðinn stór.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk
Fókus
Fyrir 6 dögum

Öskraði upp yfir sig þegar hún sá stöðuna á bankareikningnum

Öskraði upp yfir sig þegar hún sá stöðuna á bankareikningnum
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sakar fyrrverandi þjálfara um kynferðislega áreitni – „Hún gerði líf mitt að lifandi helvíti“

Sakar fyrrverandi þjálfara um kynferðislega áreitni – „Hún gerði líf mitt að lifandi helvíti“
Fókus
Fyrir 1 viku

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma
Fókus
Fyrir 1 viku

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir
Fókus
Fyrir 1 viku

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu
Fókus
Fyrir 1 viku

Brooklyn Beckham lokar á fjölskylduna og svarar ekki skilaboðum

Brooklyn Beckham lokar á fjölskylduna og svarar ekki skilaboðum