fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Brotist inn hjá Erlu Björg: Ófögur sjón blasti við inni á baðherbergi daginn eftir

Lofaði að læsa útidyrahurðinni á næturna eftir atvikið

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 23. febrúar 2016 10:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erla Björg Gunnarsdóttir lofaði sínum nánustu að læsta útidyrahurðinni á nóttunni eftir að óprúttinn aðili braust inn heima hjá henni. Ýmislegt smálegt var tekið en það var ófögur sjón sem blasti við Erlu þegar hún fór inn á baðherbergið þegar hún vaknaði daginn eftir.

Frá þessu greinir Erla, sem er blaðamaður hjá 365, í Bakþönkum Fréttablaðsins í dag. Þar segir Erla að hún hafi löngum verið kölluð kærulaus þegar kemur að því að treysta öðru fólki. „Ég hef lifað eftir lífspekinni að betra sé að treysta og verða fyrir vonbrigðum í stað þess að eyða lífinu á varðbergi,“ segir hún og bætir við að hún læsi ekki bílnum sínum og týni reglulega kreditkortinu sínu án þess að loka því.

„Einhverjir hugsa núna að ég sé fáviti. En þið eruð ekki einu sinni búin að heyra söguna af því þegar það var kúkað í klósettið mitt. Þá var farið inn til mín um miðja nótt enda að sjálfsögðu allt ólæst og ég svaf á mínu græna. Daginn eftir tek ég eftir að ýmislegt smálegt er horfið. Fer svo inn í baðherbergi þar sem klósettið stendur opið og risastór kúkur syndir í skálinni. Einhver hefur verið að gramsa og orðið mikið mál. Gleymdi að sturta niður (og reyndar að skeina). Ég tel nú ekki líklegt að þetta gerist aftur. Varla tvisvar fyrir sömu manneskju. En ég lofaði mínum nánustu – sem fannst þetta ekki fyndin saga – að læsa útidyrahurðinni. Á nóttunni,“ segir Erla.

Erla bendir á að hún vinni á fréttastofu og sé fullkomlega meðvituð um allan viðbjóðinn í samfélaginu okkar. Samt látum við börnin okkar sofa ein úti og skiljum bílinn okkar eftir í gangi þegar við skjótumst inn í bankann.

„Við þurfum að halda fast í þetta þegar ljótar fréttir skella á okkur. Muna hver við erum og hvaðan við komum. Ókei. Mögulega klókt að læsa útidyrunum en höldum í fallega traustið. Þannig held ég að við séum helmingi sterkari í baráttunni við ógeðið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short