

Elín Auður Eyfjörð Ármannsdóttir er 24 ára stelpa úr Garðabænum sem hefur upplifað margt. Hún er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.
Elín ólst upp við vanrækslu og andlegt ofbeldi, að eigin sögn.
„Systir mín er þremur árum yngri en ég og pabbi hennar er bara ógeðslegur, ég á ekkert annað orð til að lýsa honum.“
Elín passaði upp á yngri systur sína í erfiðum aðstæðum.
Skólagangan sem slík gekk ágætlega en Elín átti erfitt með að eignast vini.
Í áttunda bekk byrjaði svo gróft einelti bæði rafrænt og í persónu.
„Ég fékk vel að finna fyrir því í Garðaskóla að ég væri hálf asísk og í þyngri kantinum. Það var meira að segja gert grín af mér í árshátíðarmyndbandinu þegar ég var í áttunda bekk.“
Í skólanum var hún kölluð öllum illum nöfnum, mat kastað í hana og enginn starfsmaður gerði neitt.
Elín faldi sína vanlíðan alltaf en notaði mat til að flýja tilfinningar sínar, án þess að átta sig á því. „Ég var alltaf með nóg af mat með mér og borðaði í laumi.“
Þegar Elín var orðin fullorðin og búin að missa tökin á þyngdinni auk þess að hafa séð móður sína, stjúpföður og stjúpmóður fara í aðgerðir til að ná tökum á þyngdinni fór hún í magaermi.
„Ég fattaði eftir aðgerðina að ég væri haldin matarfíkn þegar ég gat ekki borðað. Ég þurfti eitthvað annað til að minnka sársaukann innra með mér.“
Á þessum tímapunkti kom áfengi inn í líf Elínar með trukki. Hún var mætt í ríkið fyrir opnun og neyslan þróaðist á ógnarhraða yfir í lyf hjá læknum og síðan á svörtum markaði.
Það sem einnig hefur hrjáð Elínu mikið er sjálfskaði og er líkami hennar undirlagður stórum og miklum örum.
Elín átti pantað á Vog en rúmri viku áður tók hún of stóran skammt, viljandi, sem endaði á gjörgæslu. Þaðan fékk hún pláss á fíknigeðdeild og beint á Vog.
„Ég fékk engin fráhvarfslyf á geðdeild sem var ógeðslegt! Ég var ekki tilbúin til þess að fara á Vík og eftir nokkra daga á Vogi vildu þeir bara losna við mig fyrst ég ætlaði ekki á Vík.“
Í apríl 2025 bað strákur, sem Elín hafði verið að hitta áður, hana um að hittast. Þau hittust heima hjá henni, horfðu á mynd, hún sofnaði og hann nauðgaði henni. Hún gerði allt rétt, fór á neyðarmóttöku og gisti svo hjá mömmu sinni. Tveimur dögum síðar braust sami strákur inn hjá henni, nauðgaði henni og fór. Þá fór hún aftur í skoðun og þá kærði hún. Hún segir frá þessu áfalli og fleiru í sambandi við það í þættinum.