

Hún ákvað því að fara óvenjulega leið og lagði til að þau myndu stunda kynlíf á hverjum degi í heilt ár – 365 daga!
Charla segir að viðbrögð eiginmannsins hafi ekki verið eins hún hafði ímyndað sér. Þegar hún sagði honum frá hugmyndinni tók hann henni ekki strax fagnandi. Honum fannst tilhugsunin um að skipuleggja kynlíf fyrir fram geta tekið eitthvað af hefðbundinni rómantík sambandsins.
Auk þess hafði hann áhyggjur af því hvort slíkt væri raunhæft í daglegu lífi. Hann velti til dæmis fyrir sér hvað myndi gerast ef annað þeirra væri þreytt eða ekki í stuði.
Eftir nokkra umhugsun samþykkti hann þó að prófa, að því gefnu að þau settu ákveðnar reglur. Ein reglan kvað til dæmis á um að hvorugt þeirra þyrfti að taka þátt ef þeim liði ekki vel.
Charla hefur áður vakið athygli fyrir þessa tilraun og meðal annars skrifað bók og haldið Ted-fyrirlestur.
Í upprifjun Viral Thread kemur fram að verkefnið hafi verið krefjandi og krafist breytinga á daglegum venjum þeirra. Þannig þurftu þau að skipuleggja heimilislífið þannig að þau gætu fundið tíma fyrir hvort annað.
Þótt þau hafi ekki alltaf náð markmiðinu um að stunda kynlíf á hverjum einasta degi, voru þau saman mun oftar en áður. Charla segir að áður en tilraunin hófst hefði kynlífið í sambandinu smám saman orðið sjaldgæfara.
Eftir að þau hófu áskorunina hafi tilfinningin hins vegar breyst. „Það var eins og við værum aftur farin að deita,“ hefur hún sagt í viðtölum.
Hún tók einnig eftir breytingum í daglegum samskiptum þeirra. Þau urðu hjálpsamari og samvinnuþýðari, og tíminn sem þau eyddu saman snerist frekar um sambandið sjálft en sérstök tilefni.
Undir lok ársins viðurkenndu þau þó að stundum væru þau einfaldlega að fylgja áætluninni frekar en að vera sérstaklega spennt fyrir henni. Þrátt fyrir það töldu þau verkefnið hafa haft jákvæð áhrif á sambandið.
Í fyrrnefndri bók sem Charla skrifaði lýsti hún árinu sem tilraun sem endaði á að styrkja samband þeirra og minnka spennu í daglegu lífi. Þessi reynsla hafi kennt þeim að gefa hvort öðru meiri tíma og athygli í annasömum hversdagsleikanum.