

„Þetta lag er fyrir allar yndislegu konurnar sem komnar eru á besta aldur“
segja stöllurnar Elísa Hildur Þórðardóttir og Selma Hafsteinsdóttir um nýjasta lag dúettsins Bergmál sem þær skipa. Textinn er við lag ABBA, Chiquitita.
Í laginu lýsa þær breytingum á hegðun og líkama sem margar konur ættu að tengja við eftir því sem árunum fjölgar.