fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Fókus
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 10:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Christina Applegate glímir við MS-sjúkdóminn (e. multiple sclerosis) sem er langvinnur sjúkdómur í miðtaugakerfi þar sem truflun verður á taugaboðum á milli heila og líkama. Einkennin eru breytileg milli einstaklinga en engin lækning er til þó svo að nútímameðferðir geti hægt að framvindu sjúkdómsins.

Applegate greindist árið 2021 en hún var þá í kringum fimmtugt og hafa sjúkdómseinkenni hennar versnað hratt undanfarin ár. Hún greinir nú frá því í samtali við People að hún sé að mestu rúmliggjandi vegna verkja.

Leikkonan segist ekkert vilja frekar en að geta verið til staðar fyrir 15 ára dóttur sína, Sadie, svo leikkonan harkar af sér verkina til að geta skutlað henni í skólann og svo sótt hana að skóladeginum loknum.

„Ég segi við sjálfa mig: Þú þarft bara að koma henni þangað öruggri og svo koma þér heim svo þú getir skriðið aftur upp í rúm. Og það geri ég.“

Leikkonan er nú að gefa út endurminningar sínar, You With the Sad Eyes, þar sem hún opnar sig um lífið, ferilinn, ofbeldissambönd, foreldrahlutverkið og reynslu hennar af brjóstakrabbameini og MS.

Leikkonan var aðeins barn þegar hún upplifði sín fyrstu áföll. Móðir hennar, leikkonan Nancy Priddy, glímdi við heróínfíkn og hleypti ofbeldisfullum mönnum inn á heimilið sem beittu mæðgurnar báðar ofbeldi.

„Ég held að ég hafi verið í mínum verstu aðstæðum á aldrinum 3-7 ára, en það var eitthvað svona í gangi á öllum heimilunum í hverfinu. Einstæðar mæður, menn sem komu og fóru, fíkniefni. Það er alltaf gaman að sjá mömmu sína grenjandi á gólfinu á meðan maður er vanræktur.“

Applegate segir að uppeldið hafi orðið til þess að hún sjálf leitaði í ástarsambönd við ónytjunga og fíkla.

„Mamma sagði alltaf: Ég hef aldrei hitt fíkil sem mér líkaði ekki við. Og þannig rúllaði ég eiginlega líka. Ég var aldrei með manni sem var með alvöru vinnu, ég var alltaf með þessum vænbrotnu fuglum sem ég vildi bjarga. Ég trúði alltaf að ég gæti það, en veistu hvað? Maður getur það ekki. Vonandi getur einhver dregið lærdóm af þessu.“

Applegate segir að bók hennar fjalli um litla stúlku með sorgmædd augu sem óx úr grasi og varð Christina Applegate.

„Og hún er enn með þessi sorgmæddu augu. En hún er sterkari, öðruvísi og þrautseigari manneskja. Og það er svona kjarninn í minni sögu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“