fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 21:30

Bandaríkjamenn eiga margir hverjir erfitt með nekt. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarísk kona sem er á leiðinni í ferðalag til Íslands óttast að senda unglings son sinn einan og allsberan í sturtuklefa á Íslandi. Allt annað viðhorf til nektar hér hérna en í heimalandi hennar.

„Ég mun ferðast einsömul með þrettán ára son minn. Ég var að frétta af þeim sið að fólk fari saman nakið í sturtu hérna,“ segir konan í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit.

Hefur hún af þessu miklar áhyggjur og spyr ráða. Hvort aðrar einstæðar mæður með syni hafi ferðast til Íslands og hvernig þær hafi ráðlagt þeim að takast á við þessar aðstæður.

„Vitaskuld mun hann þurfa að fara þangað inn sjálfur,“ segir konan. „Hann er mjög sjálfsmeðvitaður um nekt. Ég geri mér grein fyrir að líklega er það ég sem á erfitt með þetta en mér líður ekkert allt of vel með að senda hann einan í sturtuklefann.“

Hafa skapast töluverðar umræður um færsluna. Er konunni meðal annars bent á að margar sundlaugar og lón bjóða upp á einkaklefa. Einnig að það sé lítið mál fyrir flesta að fara í opinn sturtuklefa.

„Það verður allt í lagi með hann. Þetta er ósköp venjuleg búningsklefastemning. Menn og strákar á öllum aldri sturta sig saman mjög hratt, enginn starir, enginn talar saman, allir gera sitt og halda áfram,“ segir einn. „Þetta kann að virðast sjokkerandi fyrir Bandaríkjamann en menningarlega er þetta mjög venjulegt hérna. Það er starfsfólk þarna, þetta er fyrir alla og er mjög öruggt.“

„Hér á Íslandi er fólk gert að fara í sturtu fyrir sundið af hreinlætisástæðum. Þetta snýst ekki um nektina sjálfa. Þetta er mjög eðlilegt hérna og ekki eitthvað sem fólk pælir mikið í,“ segir annar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 4 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“