

Brynjar upplýsti í vikunni að hann ætli sér í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borginni en eins og kunnugt er sat hann á þingi fyrir flokkinn á árunum 2013 til 2021.
Sjálfur mun Stefán verma þriðja sætið á framboðslista Vinstrisins sem er sameiginlegt framboð Vinstri grænna og Vors til vinstri. Sanna Magdalena Mörtudóttir verður oddviti framboðsins og Líf Magneudóttir mun skipa annað sætið.
Stefán sló á létta strengi á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi og beindi sterkum varnaðarorðum til Brynjars.
„Brynjar Níelsson mun vera á leið í framboð fyrir íhaldið. Það er nánast borgaraleg skylda mín að vara hann við. Ekki gera það Brynjar! Þetta er versta djobb í heimi. Nú ertu sannarlega bæði latur og athyglissækinn en leiðist tilgangslausir fundir. Þessu starfi fylgir mýgrútur funda, endalausir pappírar til að lesa og meðaláhorfið á Jútúb-rás borgarstjórnar er 17. Stofnaðu frekar poddkast eins og allir hinir.”
Þegar þetta er skrifað hefur Brynjar ekki brugðist við færslu Stefáns.