fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Birtir hjartnæma mynd frá kveðjustundinni

Fókus
Föstudaginn 13. febrúar 2026 09:32

Vinirnir saman á kveðjustundinni. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn og skemmtikrafturinn Alfonso Ribeiro birti hjartnæma mynd frá því þegar hann kvaddi vin sinn, leikarann James Van Der Beek, á dögunum.

James lést í fyrradag, 48 ára að aldri, eftir tveggja ára baráttu við ristilkrabbamein. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Kimberly, og sex börn: Olivia, 15 ára, Joshua, 13, Annabel, 12, Emilia, 9, Gwendolyn, 7, og Jeremiah, 4.

Alfonso og James voru góðir vinir og er James til dæmis guðfaðir Gwendolyn.

Í færslu á Instagram sagði Alfonso að hann hafi verið hjá James skömmu áður en hann lést. „Þessi mynd var tekin af @vanderkimberly nokkrum mínútum áður en ég kvaddi hann í síðasta sinn […] Ég sakna hans mjög mikið nú þegar,” sagði Alfonso.

Hann minntist einnig vinar síns skömmu eftir að tilkynnt var um andlát hans.

„Ég er alveg niðurbrotinn núna vegna fráfalls vinar míns @vanderjames í dag. Hann var sannur vinur, bróðir og leiðsögumaður í gegnum lífið. Ég stóð við hlið hans í þessari hræðilegu baráttu.”

Þá sagði Alfonso að þau hjónin, James og Kimberly, hefðu breytt lífi hans.

„Ég mun ávallt standa í þakkarskuld fyrir allt sem þau hafa gefið mér og fjölskyldu minni. Hann mun lifa að eilífu í hjarta mínu. Ég mun alltaf vera til staðar fyrir börnin þeirra. Ég mun ætíð líta á hlutverk mitt sem guðfaðir Gwen sem eitt það mikilvægasta í lífi mínu. Ég elska þig, James, og veit að ég hef verndarengil sem fylgist með mér. Að hafa getað kvatt þig um helgina mun ávallt reynast mér dýrmætt. Hvíl í friði, bróðir minn. Hvíl í friði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set