

Grínistinn Þórhallur Þórhallsson hefur nú gefið út sína þriðju uppistandssýningu á YouTube, sem ber heitið Segð’eitthvað Fyndið!. Með útgáfunni heldur hann áfram að brjóta blað í íslenskri grínsenu með því að gera vandað efni aðgengilegt öllum, án endurgjalds.

Í sýningunni fer Þórhallur á kostum með persónulegar sögur, allt flutt á hans einstaka, létta og fyndna máta. Efnið fjallar meðal annars um móðir hans sem heldur alltaf að hann sé dauður út í skurði þegar hann svarar ekki símanum, hversu gagnslaus hann var á meðan á meðgöngunni stóð af hans fyrsta barni, þegar Rottweiler hundar lögðu hann í einelti og margar aðrar bráðfyndnar sögur úr lífi hans.

Þórhallur hefur verið einn af virkari uppistöndurum landsins í yfir 20 ár og var kjörinn Fyndnasti maður Íslands árið 2007. Hann hefur starfað við útvarp, sjónvarp og sviðslistir og er þekktur fyrir sterka sviðsframkomu, snögga hugsun og að ná einstakri tengingu við áhorfendur.