fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Lyktaði undarlega árum saman en ástandið hefur lagast

Fókus
Sunnudaginn 25. janúar 2026 20:03

Robert Pattinson. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hollywood-stjarnan Robert Pattinson segist árum saman hafa lyktað undarlega en ástandið hafi nýlega blessunarlega lagast. Leikarinn er sendiherra Dior-herrailmsins en líkamslykt hans sjálfs var ekki beint geðsleg.

Það vakti athygli árið 2020 þegar Pattinson opnaði sig um það að margir hefðu haft orð á því að hann lyktaði eins og vaxlitur, sem getur varla talist eftirsóknarvert.

Í nýlegu viðtali við GQ-tímaritið segir Pattinson hins vegar að ástandið hafi blessunarlega lagast. Hann tæki ekki jafnmikið eftir líkamslykt sinni og áður, sem og fólkið í kringum hann, en kenning hans væri einfaldlega sú að líkamslyktin dvíni eftir því sem fólk eldist, það eigi að minnsta kosti við í hans tilviki.

Þessi einkennilega líkamslykt virðist þó ekki vera arfgeng en Pattinson eignaðist dóttur árið 2024 með kærustu sinni Suki Waterhouse. Segist hann alltaf hafa haldið að tal um að börn ilmi vel hafi verið út af barnapúðri en hann hafi svo komist af því að nýburar þurfi engar snyrtivörur til þess.

„Dóttir mín ilmar alveg ótrúlega,“ sagði Pattinson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi