fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Brooklyn og Nicola eiga eina myndbandið af „óviðeigandi dansi“ Victoriu

Fókus
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 09:30

Brooklyn Beckham, Nicola Peltz, Victoria Beckham og David Beckham.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brooklyn Beckham og eiginkona hans, Nicola Peltz, eru sögð eiga eina myndbandið sem sýnir „óviðeigandi dans“ Victoriu Beckham í brúðkaupi hjónanna.

Brooklyn fór mikinn á samfélagsmiðlum í vikunni þegar hann birti harðorða yfirlýsingu sem beindist gegn foreldrum hans, Victoriu og David Beckham. Brooklyn, sem er 26 ára og elsti sonur hjónanna, hefur átt í langvarandi deilum við foreldra sína á undanförnum árum en í yfirlýsingunni kom hann víða við og rifjaði til að mynda upp atvik í brúðkaupi þeirra hjóna árið 2022.

Sagði hann til dæmis að móðir hans hafi tekið yfir fyrsta dans þeirra hjóna í brúðkaupinu og dansað á mjög óviðeigandi hátt. Þetta hafi valdið honum mikilli vanlíðan og skömm. Sagði hann að þetta hafi orðið til þess að þau ákváðu að endurnýja heit sín ári síðar án viðveru fjölskyldu hans.

Page Six greinir frá því að Brooklyn og Nicola eigi myndbandið af dansinum. Þetta staðfesta tveir heimildarmenn miðilsins en People greinir frá því að hjónin hafi ekki í hyggju að birta myndbandið opinberlega að svo stöddu.

TMZ segir frá því að dansinn í brúðkaupinu hafi staðið yfir í nokkrar mínútur og gestir hafi ekki „alveg vitað hvernig þeir ættu að bregðast við“ eins og það er orðað. Herma heimildir að Victoria hafi dansað þétt upp við son sinn og sýnt af sér hegðun sem væri frekar viðeigandi fyrir rómantískt samband en samband móður og sonar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi