fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Varpa sprengju í máli leikarans sem er sakaður um barnaníð

Fókus
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 17:30

Timothy Busfield

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Timothy Bushfield hefur verið sakaður um barnaníð en hann er hvað þekktastur fyrir leik sinn í pólitísku dramaþáttunum The West Wing. Handtökuskipun var gefin út þann 9. janúar og gaf leikarinn sig fram við lögreglu viku síðar.

Busfield er meðal annars sakaður um að hafa snert börn á óviðeigandi hátt á tökustað sjónvarpsþáttanna The Cleaning Lady, en hann bæði leikur í og leikstýrir þáttaröðinni. Umrædd börn eru tvíburabræður sem léku í þáttunum.

Fyrir helgi greindu fjölmiðlar frá því að þriðja meinta þolandanum, maður að nafni Colin Swift, segir að leikarinn hafi káfað á 16 ára dóttur sinni í áheyrnarprufu skömmu eftir aldamótin. Leikarinn hafi svo grátbeðið foreldra stúlkunnar um að tilkynna brotið ekki til lögreglu og hét því að leita sér aðstoðar.

TMZ hefur nú birt sprengju um málið, en miðillinn hefur undir höndum upptöku af fyrstu skýrslugjöf tvíburabræðranna hjá lögreglu í nóvember árið 2024. Þar voru drengirnir spurðir hvort leikarinn hefði snert þá með óviðeigandi hætti og neituðu þeir því báðir.

Ákæruvaldið heldur því fram að drengirnir hafi ekki opnað sig um brotin fyrr en eftir þessa fyrstu skýrslugjöf, í samtali við sálfræðing.

Fyrrum starfsmaður á tökustað The Cleaning Lady hefur eins gefið skýrslu í málinu en hann segist hafa heyrt móður drengjanna lýsa því yfir að ef synir hennar yrðu reknir úr þáttunum þá myndi hún ná sér niður á Busfield. Leikarinn heldur því sama fram – ásakanirnar hafi ekki komið fram fyrr en eftir að hann ákvað að skipta tvíburunum út fyrir yngri leikara.

Busfield hefur einnig leitt fram annað vitni um ásakanir stúlkunnar frá árinu 2001, en vitnið segist hafa rætt við föður stúlkunnar sem vildi ólmur koma á framfæri handriti fyrir sjónvarpsþætti. Taldi faðirinn öruggt að Busfield myndi sýna réttu aðilunum handritið. „Hann þarf að gera það ef hann heldur að hann fái að ríða dóttur minni“

Vitnið segist hafa spurt föðurinn hvers vegna Busfield ætti að vilja sænga hjá dótturinni og þá mun faðirinn hafa svarað: „Því hún er algjör skvísa“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi