fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Tekjuhæstu stjörnurnar á OnlyFans – Sjáðu hvað þær þéna mikið

Fókus
Mánudaginn 19. janúar 2026 06:30

Iggy, Mia, Sophie og Jameliz eru í hópi þeirra tekjuhæstu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur verið ansi arðbært að vera með síðu á OnlyFans eins og dæmin hafa sannað. Vefmiðillinn Viral Thread tók á dögunum saman upplýsingar um tekjuhæstu stjörnurnar á OnlyFans og kennir þar ýmissa grasa.

Þvert á það sem margir kynnu að halda er ekki bara að finna klámfengið efni á OnlyFans þó slíkt efni hafi mótað orðspor síðunnar á undanförnum árum.

Höfundar stjórna sjálfir hvaða efni þeir setja inn og eru dæmi um tónlistarmenn og leikara sem selja aðgang að efni „á bak við tjöldin” ef svo má segja. Athygli er vakin á því að tölurnar sem birtast hér að neðan byggja á áætlunum, til dæmis út frá fjölda áskrifenda og öðrum tekjustraumum í gegnum vefsíðuna.

1. Iggy Azalea — 9,2 milljónir dala á mánuði

Þessi 35 ára ástralski rappari mokar inn seðlum á OnlyFans og er raunar langtekjuhæsta stjarnan þar. Iggy birtir meðal annars djarfar myndir af sér auk þess að birta efni sem sýnir líf hennar á bak við tjöldin.

2. Mia Khalifa — 6,42 milljónir dala á mánuði

Mia er fyrrverandi klámmyndaleikkona og var um tíma ein sú allra vinsælasta í heiminum. Aðdáendur greiða 12 dollara á mánuði til að fá aðgang að öllu efninu á síðu hennar. Á síðunni deilir hún allskonar efni sem er ekki beinlínis kynferðislegt.

3. Erica Mena — 4,49 milljónir dala á mánuði

Erica Mena er kannski þekktust sem raunveruleikastjarna þó hún hafi einnig reynt fyrir sér í leiklist og tónlist. Hún birtir djarfar myndir af sér en líka efni sem tengist líkamsrækt, förðun og listum. Þá geta aðdáendur greitt fyrir nánari samskipti við hana.

4. Danielle Bregoli (Bhad Bhabie) — 4,4 milljónir dala á mánuði

Bhad Bhabie er rappari og áhrifavaldur og hefur verið á OnlyFans frá því hún var 18 ára. Hún talaði eitt sinn um að hún hefði þénað meira en eina milljón dollara á fyrstu sex klukkutímunum.

5. Sophie Rain — 2,9 milljónir dala á mánuði

Sophie Rain er 21 árs og búsett í Flórída. Hún nýtur mikilla vinsælda meðal ungra karla og birtir einkum myndir af sér í baðfötum eða ræktarklæðnaði.

6. Jameliz Benitez Smith — 1,63 milljónir dala á mánuði

Jameliz birtir einkum erótískt og kynferðislegt efni og græðir vel á því.

7. Amber Rose — 845 þúsund dali á mánuði

Fyrirsætan og aktívistinn heldur sig í lágstemmdum stíl á síðunni sinni, en fær þrátt fyrir það vel greitt fyrir.

8. Heir Jordyn — 700 þúsund dali á mánuði

Jordyn Woods er fyrirsæta, áhrifavaldur og frumkvöðull sem nálgast efnið á síðunni sinni með tiltölulega lágstemmdum hætti.

9. Vera Dijkmans — 600 þúsund dali á mánuði

Þessi hollenska fyrirsæta og áhrifavaldur hefur byggt upp veldi með lifandi lífsstíls- og tískuefni á samfélagsmiðlum. Hún birtir djarfar myndir á OnlyFans án þess þó að að sýna nekt.

10. Pia Mia — Tekjur ekki staðfestar

Pia Mia er 29 ára söngkona og leikkona sem fæddist á eyjunni Guam. Hún notar OnlyFans eins og margar aðrar tónlistarstjörnur, en birtir einnig djarfar myndir sem þó sýna enga nekt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set