fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Þetta skaltu alls ekki þrífa með eldhúspappír

Fókus
Sunnudaginn 18. janúar 2026 13:30

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eldhúspappír er snilldaruppfinning sem auðveldar fólki mjög að þrífa upp eitt og annað sem sullast niður, eða bara til að þurrka munninn. En það er sumt sem má alls ekki þrífa með eldhúspappír.

Gleraugu á alls ekki að þrífa með eldhúspappír því þau geta rispast við það. Best er að nota þar til gerða gleraugnaklúta.

Tréhúsgögn á heldur ekki að þurrka með eldhúspappír, ekki einu sinni þótt það sé bara smá ryk sem á að fjarlægja. Pappírinn getur rispað lakkið. Það er betra að nota mjúka tusku og þar til gerð hreinsiefni.

Raftæki á ekki að þurrka með eldhúspappír. Þetta á til dæmis við um farsíma. Eldhúspappírinn getur skaddað viðkvæmt yfirborðið og þú verður að nota miklu mýkri efni til að þurrka raftæki.

Ekki nota eldhúspappír til að þurrka nýja bletti á teppum. Það getur gert hlutina enn verri. Eldhúspappír dreifir hratt úr vökva á teppinu og það viltu örugglega ekki. Það er betra að nota hreint hvítt efni sem á að leggja ofan á blettinn, ekki nudda.

Eldhúspappír skilur eftir sig agnir og ef þú þurrkar dökkan fatnað með eldhúspappír, eftir að hafa sullað á þig, þá gerir það málið bara enn verra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi