

Aðdáendur hafa beðið lengi eftir nýrri seríu en sú síðasta kom út árið 2022.
Þriðja þáttaröðin fer í loftið í apríl næstkomandi en mikið hefur breyst hjá aðalpersónum Euphoria eins og má sjá í stiklunni hér að neðan.
Þau eru eldri og má sjá til dæmis Nate (Jacob Elordi) og Cassie (Sydney Sweeney) ganga í hjónaband. Hann vinnur í einhvers konar byggingarvinnu á meðan hún framleiðir efni fyrir síðu á borð við OnlyFans.
„Ég vinn allan daginn á meðan verðandi eiginkona mín glennir sig á netinu,“ segir hann í stiklunni.
Gömul vandamál elta Rue (Zendaya) og virðist þetta ætla að vera hörkuspennandi sería.
Horfðu á stikluna hér að neðan.