

Leikarinn Chris Noth er ekki ánægður með fyrrum mótleikkonu sína úr vinsælu þáttunum Beðmál í borginni (e. Sex and the City). Þetta má sjá af athugasemd sem hann ritaði á Instagram þar sem hann svaraði spurningu frá fylgjanda.
Noth birti mynd af sér úr ræktinni og skrifaði: „Fokking nýtt ár – KEYRUM ÞETTA Í GANG!“
Fylgjandi spurði þá hvort leikarinn meinti ekki heldur að fyrrum móttleikkonan, Sarah Jessica Parker, mætti fokka sér ásamt verðlaunum sem hún hlaut nýlega, heiðursverðlaunum Carol Burnett á Golden Globe-verðlaunahátíðinni.
Noth svaraði: „Einmitt.“
Eins og aðdáendur þáttanna þekkja vel þá leikur Sarah Jessica Parker aðalhlutverkið, Carrie Bradshaw, og hefur gert það í upprunalegu þáttunum, tveimur kvikmyndum og svo í nýjum framhaldsþáttum sem kallast Just Like That. Noth fór með hlutverk stóru ástarinnar í lífi Bradshaw, Mr. Big. Noth reiknaði fastlega með því að verða stór hluti af framhaldsþáttunum en þegar þeir voru frumsýndir árið 2021 var leikarinn sakaður um kynferðisbrot gegn tveimur konum. Þetta varð til þess að Mr. Big var drepinn í þáttunum. Parker og aðrir leikarar þáttanna birtu sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau lýstu yfir stuðningi við konurnar og fordæmdu meint ofbeldi.
Síðar stigu tvær konur til viðbótar fram með ásakanir gegn leikaranum sem hefur ekki borið sitt barr síðan. Hann er nú útilokaður frá öllu sem viðkemur Beðmáli í borginni og fyrrum samstarfsfólki hans þar. Auglýsingar sem hann lék í voru teknar úr birtingu, hann var rekinn úr þáttunum The Equalizer og hann tapaði milljarða samningi við stórfyrirtæki sem ætlaði að kaupa tekílamerkið hans, Ambhar.
Heimildir Page Six herma að leikarinn sé sár og bíði alltaf eftir afsökunarbeiðni frá Parker. Hann hafi aldrei verið ákærður fyrir kynferðisbrot og hefur ávallt haldið því fram að ásakanirnar gegn honum séu falskar.