

Aníta hefur setið í einangrun að stórum hluta síðan í september. Móðir hennar lýsir henni í viðtalinu og segir hana einmitt vera manneskju, en ekki áfallið sem hún lenti í.
„Aníta var ofsalega rólegt og þægilegt barn sem var strax á leikskóla farin að finna fyrir stoðkerfisverkjum en var tíu ára greind með gigt og hjartagalla,“ segir Klara.
Klara segir að öll skólaganga Anítu hafi gengið vel, þrátt fyrir les- og talnablindu, og að hún hafi verið hvers manns hugljúfi. Hún segir að Aníta hafi byrjað að vinna aðeins þrettán ára gömul og hafi tekið allar vaktir sem buðust, jafnvel í óþökk Klöru, sem vildi hafa dóttur sína meira heima.
Klara segir að Aníta hafi alltaf unnið mikið og hafi keypt sér nýjan bíl þegar hún fékk bílpróf sautján ára. Hún segir að á sama tíma hafi byrjað meint áreiti af hálfu lögreglunnar í garð Anítu.
„Aníta var stoppuð stanslaust fyrir ekki neitt. Hún átti glænýjan Polo sem var alltaf verið að sekta hana fyrir að vera með þokuljósin á svo ég fór með hann í umboðið til að athuga hvort það væri hægt að slökkva þessi ljós en þá var þetta bara dagljósabúnaður sem ekki var hægt að slökkva”, segir Klara.
Hún segir að hún hafi farið á bílnum niður á stöð til að ræða við þáverandi lögreglustýru varðandi málið og boðið henni að slökkva ljósin – sem hún segir hafi kostað dóttur hennar bílprófið – en segir að sér hafi verið mætt með kjafti og hurðinni skellt.
Klara segir að lögreglan hafi handtekið Anítu hátt í þrjúhundruð sinnum fyrir hin ýmsu brot svo sem að gefa ekki stefnuljós, oftar en einu sinni eða tvisvar.
Árið 2022 lenti Aníta í bílslysi þar sem hún fékk þungt höfuðhögg auk þess að verða slæm líkamlega og fá Pots í kjölfarið. Hún lenti síðar í öðrum hörðum árekstri, sem farþegi, eftir að hafa náð töluverðum bata frá fyrra slysi en Klara segir að þá hafi allt hrunið aftur.
„Hún hefur ekki geta unnið frá því hún lenti í þessu slysi 2022 og það er áfall,“ segir Klara.
Klara segir að lögreglan hefur alltaf haldið því fram að Aníta væri í neyslu og hafi margoft handtekið hana vegna gruns um að keyra undir áhrifum, þrátt fyrir að ekkert mælist þegar hún blæs í mæla þeirra.
„Þeir handtaka hana með offorsi og henda í klefa til að bíða eftir blóðprufum, sem allar hafa komið hreinar út, í tugum talið,“ segir Klara.
Klara segir einnig frá alvarlegu atviki sem átti sér stað í tengslum við ákæru sem Aníta á nú yfir höfði sér: „Hún var búin að skera af sér allt skinn frá mitti og niður og taka mikið magn af lyfjum í þeim tilgangi að enda líf sitt en hringdi á sjúkrabíl til að fá hjálp. Í því ástandi á hún að hafa sparkað í einhvern og klipið í öxl.“
„Hvar er samkenndin og er þetta í raun og veru það sem samfélagið vill standa fyrir?“ spyr Tinna Barkardóttir, þáttastjórnandi Sterk saman.
Hlustaðu á þáttinn hér.