

Leikarinn og leikstjórinn Timothy Busfield, sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Danny Concannon í sjónvarpsþáttunum The West Wing, stendur frammi fyrir ákæru um kynferðislegt samneyti við ólögráða einstakling og barnaníð, samkvæmt handtökuskipun sem hefur verið gefin út í Nýju Mexíkó. Leikarinn er nú á flótta undan réttvísinni og hefur dómsmálaráðuneytið sent fulltrúa U.S. Marshal Service til að hafa uppi á honum.
U.S. Marshal Service er sérstök deild bandaríska dómsmálaráðuneytisins. Þar starfa alríkislögreglumenn að ýmsum verkefnum. Deildin sér um að vernda vitni í stórum sakamálum, gæta öryggis dómara, sjá um mikilvæga fangaflutninga og svo hafa þeir uppi á strokuföngum og öðrum sem eru á flótta undan réttvísinni.
Samkvæmt handtökuskipun er Busfield sakaður um að hafa brotið gegn 11 ára tvíburabræðrum. Annar bræðranna segir að ofbeldið hafi byrjað þegar hann var aðeins sjö ára gamall. Ofbeldið mun hafa átt sér stað á tökustað sjónvarpsþáttanna The Cleaning Lady sem Busfield leikstýrði og lék í.
Busfield hefur verið yfirheyrður vegna ákærunnar og neitar sök. Heldur hann því fram að foreldrar drengjanna séu að hefna sín á honum þar sem drengjunum hafi verið skipt út fyrir yngri leikara.
Leikarinn er giftur leikkonunni Melissa Gilbert, sem gerði garðinn frægan í þáttunum vinsælu Húsið á sléttunni. Gilbert hefur nú lokað samfélagsmiðlum sínum.
Sjá einnig: Leikarinn ákærður fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn barni – Handtökuskipun gefin út