

Bandarísk kona, Kathryn að nafni, innbyrðir allan matinn sinn á frekar óvenjulegan hátt, það er í gegnum nefið. Hún getur ekki hætt að taka matinn nefið jafn vel þó hún sé í töluverðri hættu á að fá sýkingar.
Kathryn, sem býr í Virginíu fylki, var í viðtali í sjónvarpsþættinum „My Strange Addiction“ (e. Mín undarlega fíkn) á stöðinni TLC.
„Samband mitt við mat var mjög venjulegt þangað til að ég byrjaði í háskóla,“ segir Kathryn sem er núna á fertugsaldri. „Þetta byrjaði með því að ég var mönuð til þess að sjúga ávaxtasafa upp í nefið. Ég fór í vímu og fann meira ávaxtabragð en ef ég hefði sett safann upp í mig. Þetta var undursamleg reynsla. Síðan þá hef ég innbyrt allan mat í gegnum nefið, í um það bil fimm ár.“
Kathryn borðar allt í gegnum nefið, til dæmis ommilettur, sveppi, spínat, steikur, kaffi og sterkt guacamole. Hún blandar öllu saman í blandara og notar rör til að sjúga vökvann upp í nefið.
Þó henni finnist þetta gott þá hefur þetta ýmsa ókosti. Til að mynda finnst vinum hennar og ættingjum þetta frekar ógeðfellt. Þá finnst unnusta hennar þetta heldur ekki upp á marga fiska og hvatti hana til að fara til læknis. Kathryn gerði það og fékk aðvörun um að þetta gæti valdið sýkingum í nefholi eða brunasýkingum, það er ef maturinn er sterkur. Þá getur maturinn einnig setið fastur í öndunarveginum og kæft hana.
„Ég veit ekki alveg hvað ég ætla að gera í þessu,“ segir Kathryn. „Ég ætla að reyna að taka hænuskref til að hætta þessu.“