

Harrison Ford svaraði játandi þegar spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel spurði hvort leikarinn hefði nokkurn tímann stundað kynlíf á meðan hann hlustaði á tónlist úr sínum eigin kvikmyndum.
Spurningin kom eftir að Kimmel spilaði klippu úr sjónvarpsþáttunum Shrinking, þar sem Harrison lék sálfræðing með Parkinsons-sjúkdóminn, en í klippunni má heyra persónuna humma þekkt stef úr kvikmyndunum um Indiana Jones, þar sem Harrison lék einmitt titilhlutverkið.
„Var þetta eitthvað sem kom samleikurum þínum á óvart?“ spurði Kimmel og leikarinn sagðist ekki muna það nákvæmlega.
„Þú manst þá kannski þetta,“ hélt Kimmel áfram og spurði svo: „Hefðirðu einhvern tímann notað ásta við tónlist úr einhverju af kvikmyndunum sem þú hefur leikið í? Kannski úr Witness?“
„Að sjálfsögðu hef ég gert það,“ sagði leikarinn eftir nokkuð langa þögn. Hann fór ekki frekar í saumana á þessu svo aðdáendur hans geta bara giskað hvaða tónlist hefur orðið fyrir valinu. Mögulega ódauðlega stefið úr Indiana Jones, mögulega ódauðlega stefið úr Stjörnustríðsmyndunum og mögulega eitthvað allt annað. Harrison hefur enda leikið í mörgum frægum kvikmyndum svo hann ætti að eiga heilu skápana af plötum sem hann getur notið ástar við.
Harrison er giftur leikkonunni Calistu Flockhart. Það var hans þriðja eiginkona en fyrst var hann giftur Mary Marquard og á með henni tvö börn, svo var það Melissa Mathison sem hann á líka tvö börn með og loks Calista en Harrison gekk syni hennar í föðurstað og ættleiddi hana eftir að leikararnir gengu í hjónaband árið 2010.