fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fókus

Patrekur Jamie ætlar að kjósa flokkinn sem er tilbúinn að lofa þessu – „Hvað er að frétta?“

Fókus
Fimmtudaginn 12. mars 2026 15:30

Patrekur Jaime. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Patrekur Jaime hefur birt ákall á TikTok til stjórnmálaflokkanna í Reykjavík. Þar lofar hann því að kjósa flokkinn sem er tilbúinn að gera tilteknar úrbætur á samgöngum.

„Bling, bling, bling, bling. Nú hef ég sko bara eitt að segja og það er: Fyrst það eru að koma kosningar þá er ég sko tilbúinn að kjósa hvaða flokk sem er sem ákveður að laga göturnar, þannig ég sé ekki alltaf að keyra í holum.“

Patrekur Jaime segir að honum sé sama um allt annað sem sá flokkur gæti staðið fyrir, svo lengi sem hann þurfi ekki lengur að keyra um holóttar götur í borginni.

„Mér er sko alveg sama hvað þessi flokkur stendur fyrir. Þótt þeir séu bara að loka spítölum, brenna leikskólana, henda gamla fólkinu út á götu og bara opna og loka landamærunum og fara í Evrópusambandið eða bara vera með Norður-Kóreu. Bara ef einhver getur lagað göturnar. Það er ekki eðlilegt að ég sé með króníska heilahristinga út af því að ég er að keyra í Reykjavík. Þúst, mér líður stundum eins ég sé bara einhver sveittur kall, bara að fara að kaupa mér mellu, bara í 1918 á hestbaki með Eiríki rauða. Hvað er að frétta? Þannig bara ef einhver ætlar að laga göturnar — You. Have. My. Vote.“

Myndbandið hefur ekki farið fram hjá stjórnmálamönnunum. Ungir Miðflokksmenn hvetja Patrek í athugasemd til að kjósa Miðflokkinn og Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknar í Reykjavík, lofar að græja þetta fyrir áhrifavaldinn: „Ég skal græja þetta“ og undir það tekur borgarfulltrúi Framsóknar, Magnea Gná Jóhannsdóttir. Eins hefur Framsókn í Reykjavík skrifað í athugasemd að flokkurinn sé sammála Patreki og að um mikilvægt mál sé að ræða.

Kollegi Patreks úr heimi áhrifavalda, Sunneva Einarsdóttir, veltir því fyrir sér í athugasemd hvaðan þessar holur koma eiginlega. „Ein spurning: hver er að gera þessar holur?? How does it happen??!!“

 

@patrekurjaimee Tilbúinn í kosningar 💕✨ #íslenskt #fyp #fyrirþig ♬ Sakura-lined street – KCNX

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“
Fókus
Í gær

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Afrika Bambaataa er látinn

Afrika Bambaataa er látinn
Fókus
Fyrir 1 viku

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn