fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Fókus
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 08:11

Halle Berry. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska Óskarsverðlaunaleikkonan Halle Berry ræðir á opinskáan hátt um kynlíf í hlaðvarpsþættinum Sex With Emily sem Dr. Emily Morse heldur úti.

Berry, sem er 59 ára og trúlofuð tónlistarmanninum Van Hunt, sagði meðal annars frá því sem hún gerir ekki lengur í svefnherberginu: Hún gerir sér ekki lengur upp fullnægingu.

Leikkonan sagði að hún hefði í fyrri samböndum fundið fyrir þrýstingi um að láta maka sínum líða vel og þykjast hafa fengið fullnægingu.

„Ég geri það ekki lengur,“ sagði hún í þættinum.

Hún segist hafa staðið í þeim sporum að hafa gert sér upp fullnægingu til að láta bólfélaganum líða vel með sjálfan sig – þar sem þeir eiga það jú til að koma á undan.

„En hvað er það að gera? Það er að setja þarfir hans ofar okkar eigin,“ sagði hún og bætti við að nálgun hennar væri önnur í dag. „Við eigum bæði skilið að þetta sé gagnkvæm ánægja, þannig að við getum bæði sofnað sátt – ekki þannig að annar hrjóti á meðan hinn liggur og starir upp í loftið.“

Berry og Van Hunt hafa verið saman frá árinu 2020 og hefur hún sagt að samband þeirra byggist á djúpum tilfinningalegum tengslum. Í viðtali við tímaritið Marie Claire árið 2024 sagðist hún hafa upplifað þá einstöku reynslu með Van Hunt að verða brjálæðislega ástfangin af honum áður en þau hófu kynferðislegt samband.

„Það hafði aldrei gerst áður hjá mér,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“