fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Fókus

Stebbi fagnar stórafmæli með söngveislu

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 20. febrúar 2026 06:30

Stefán Hilmarsson. Mynd: Jakob Jóhannsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 26. júní fagnar Stefán Hilmarsson tónlistarmaður 60 ára afmælinu með stórtónleikum í Hörpu, sem marka einnig tímamót á viðburðarríkum ferli eins ástsælasta söngvara þjóðarinnar, sem spannar fjörutíu ár. Þetta verða ekki einungis hefðbundnir tónleikar, heldur hátíð heillar kynslóðar, sem sungið hefur með honum undanfarna áratugi.

Stefán Hilmarsson – 60 ára afmælistónleikar í Hörpu

Á komandi sumri, þegar sextíu ár eru liðin frá fæðingu Stefáns Hilmarssonar, má ljóst vera að hann er ekki aðeins hluti af íslenskri tónlistarsögu, heldur einn af burðarásum hennar.

Á tónleikunum verður öllu til tjaldað; Stefán mun syngja úrval þekktra laga, allt frá fyrstu vinsældalögum níunda áratugarins til seinni tíma laga, sem mörg eru orðin hluti af íslenskri tónlistararfleifð. Honum til aðstoðar verða sérvaldir spilarar, fjölskipuð hljómsveit, blásarar, bakraddarar og fleiri hjálparkokkar. Óvæntir og væntir leynigestir munu setja svip sinn á kvöldið, sem gæti orðið sögulegt.

40 ár við hljóðnemann

Stefán hefur starfað að tónlist meira eða minna frá árinu 1986, árið sem hann lauk stúdentsprófi. Hann varð snemma tónelskur, þótt lítið kæmi hann að tónlistariðkun á yngri árum. En á útskriftarárinu lét hann að sér kveða með hljómsveitinni Sniglabandinu. Árið eftir vakti Stefán töluverða athygli þegar hann söng endurgerð lagsins 18 rauðar rósir, en í kjölfarið flutti hann nokkur vinsæl lög fyrir Sverri Stormsker, sem leiddi til þess að hann var valinn til að syngja lagið Sókrates, framlag Íslands í Eurovision vorið 1988.

Sálin og popp-gullöld á Íslandi

Sama ár var hljómsveitin Sálin hans Jóns míns stofnuð, með Stefán í fararbroddi. Sálin sló fljótlega í gegn, starfaði með hléum í þrjá áratugi og er ein langlífasta og vinsælasta hljómsveit okkar. Með fjölda platna og ógrynni vinsælla laga á borð við Hvar er draumurinn?, Okkar nótt, Á nýjum stað, Sódóma, Krókurinn og Undir þínum áhrifum, svo fáein séu nefnd, varð Sálin órjúfanlegur hluti af tónlistarsögu þjóðarinnar. Í gegnum þetta tímabil og fram á þennan dag hefur Stefán sungið og tekið þátt í að semja ófá lög sem eru hluti hljóðrásar í lífi fjölmargra Íslendinga, jafnt með Sálinni sem og í gegnum sóló- og samstarfsverkefni af ýmsu tagi.

Fjölbreytt verkefni

Stefán hefur sex sinnum komið að þátttöku Íslands í Eurovision, ýmist sem flytjandi eða höfundur. Sérstaklega má nefna samstarf hans og Eyjólfs Kristjánssonar, sem hófst með þátttöku þeirra 1991, þegar þeir fluttu lagið Draumur um Nínu. Síðar gáfu þeir saman út tvær vinsælar plötur. Árið 1995 fór Stefán með hlutverk Júdasar í uppfærslu Leikfélags Reykjavíkur á söngleiknum Jesus Christ Superstar. Átta árum síðar var frumsaminn söngleikur Sálarinnar, Sól og máni, settur upp í Borgarleikhúsinu.

Auk Sálarinnar hefur Stefán sungið með ýmsum sveitum og listamönnum, komið að fjölmörgum hljómplötuupptökum sem flytjandi eða höfundur og ljáð rödd sína við kvikmyndir og fleiri verkefni í gegnum árin. Vert er einnig að nefna, að um þessar mundir er í framleiðslu ný íslensk bíómynd, sem byggir á lögum Sálarinnar.

Höfundur í fremstu röð

Frá fyrstu tíð hefur Stefán látið að sér kveða sem höfundur, einkum textasmiður. Hann er í hópi afkastamestu höfunda landsins síðustu áratugi og hafa á fjórða hundrað verk eftir hann verið hljóðrituð og gefin út. Auk þess að semja fyrir sig og sína, hefur Stefán samið fyrir fjölda þjóðþekktra flytjenda, svo sem Björgvin Halldórsson, Eyjólf Kristjánsson, Sigríði Beinteinsdóttur, Pál Rósinkrans, Bjarna Arason, Stjórnina, Hljóma, Í svörtum fötum, Írafár, Selmu Björnsdóttur, Friðrik Ómar, Margréti Eir og Regínu Ósk, svo einhverjir séu nefndir.

Viðurkenningar og samfélagsstörf

Stefán hefur tvívegis verið valinn söngvari ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum og hlotið sömu verðlaun sem höfundur, auk þess að hljóta fleiri tónlistartengd verðlaun. Hann var útnefndur heiðurslistamaður Kópavogs árið 2008 og bæjarlistamaður sama bæjarfélags áratug síðar. Hann tók fyrrum virkan þátt í starfi Félags tónskálda og textahöfunda, sat í stjórn þess og í fulltrúaráði STEFs, auk þess að sitja um tíma í stjórn menningarsjóðs FÍH. Fyrir liðlega áratug rann Stefáni blóðið til skyldunnar,  þegar hann var beðinn að taka sæti í skólanefnd Kvennaskólans og gegndi hann þar formennsku um skeið.

Lífið utan sviðsins

Meðfram tónlistarstörfum hefur Stefán starfað við ýmislegt, meðal annars við þýðingar fyrir kvikmyndir og sjónvarp og við grafíska hönnun. Undanfarin ár hefur hann starfað hjá STEFi samhliða músíkinni. Þá má þess geta, að Stefán er með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

Stefán er kvæntur Önnu Björk Birgisdóttur og eiga þau tvo syni, Birgi Stein (f. 1992) og Steingrím Dag (f. 2004). Árið 2023 bættist barnabarn í hópinn, Emanúel Dagur Birgisson.

Miðasala á tónleikana hefst 10. mars á tix.is og harpa.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi