fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Óskarsverðlaunaleikarinn Robert Duvall látinn

Fókus
Mánudaginn 16. febrúar 2026 18:33

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óskarsverðlaunaleikarinn Robert Duvall, sem er best þekktur fyrir hlutverk sín í kvikmyndunum The Godfather og Apocalypse Now, er látinn 95 ára að aldri.

Hann lést á heimili sínu í Virginíu á sunnudaginn samkvæmt yfirlýsingu frá eiginkonu hans, Luciana.

Duvall fór eftirminnilega með hlutverk sem einn aðalráðgjafi Corleone-fjölskyldunnar í kvikmynd Francis Ford Coppola, The Godfather, og hlaut fyrir vikið sína fyrstu tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, en síðar áttu sex tilnefningar til viðbótar eftir að bætast í hópinn. Hann endurtók svo hlutverkið í framhaldsmyndinni The Godfather Part II, en lét sig þó vanta í þriðju myndinni vegna ágreinings um laun.

„Í gær kvöddum við elsku eiginmann minn, ástkæran vin og einn besta leikara okkar tíma. Bob lést á heimili okkar, umvafinn ást og kærleika,“ segir eiginkona hans, Luciana Duvall, í færslu á Facebook.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi