fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Barátta Davíðs og Golíat – Vogue lögsækir lítið hundatímarit

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 16. febrúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlarisinn Condé Nast hefur lögsótt eiganda lítils hundatímarits í Beverly Hills sem heitir Dogue og heldur því fram að nafn og merki tímaritsins feli í sér brot á vörumerkjum sem gætu skaðað orðspor vinsælasta tímarits Con´de Nast, Vogue, og ruglað neytendur að auki.

Dogue er fullt af myndum af ferfætlingum í tískufatnaði sem líkja eftir útliti, stíl og heildarútliti Vogue, að því erCondé Nast, sem er eigandi þekktra tímarita eins ogVogue,  Vanity Fair og GQ, heldurt fram í málsókn sinni frá 5. Desember. Í málsókninni er þess  krafist að Dogue verði lokað, vörumerkjaumsókn þess verði hafnað og að ótilgreindar skaðabætur verði greiddar.

Mánaðarlegt upplag Vogue í Bandaríkjunum er um það bil 1,2 milljónir eintaka, verðið er 12 dalir á eintak, og áskrift á netinu kostar 12-36 dollara á ári. Dogue er ókeypis á netinu og hægt er að kaupa það fyrir 25 dollara í einum sölustað í Beverly Hills.

Stofnandi og ritstjóri Dogue, Oli Port,  eini eigandi Tasty Work, sem á vörumerkin fyrir Dogue, sem setur saman tímarit sitt með hjálp sex sjálfboðaliða, neitaði að segja hvort hún myndi berjast gegn málsókninni eða gefast upp fyrir kröfum Condé Nast.

„Dogue er sjálfstætt tímarit um hundatísku sem ég stofnaði árið 2019,“ sagði Port við The Post. „Það byrjaði sem leikræn túlkun á tískumenningu,  ritstjórnargreinar um hátísku, en fyrir hunda. Á sex árum hefur Dogue vaxið í samfélagsstyrkt skapandi verkefni, sem hefur framleitt 24 prentuð tölublöð, þúsundir af upprunalegum Dogue-forsíðum og þúsundir síðna af ritstjórnarefni um hundatísku. Það hefur alltaf verið skýrt vörumerki, gagnsætt skrifað og rótgróið í húmor, list og ást á hundum. Við erum staðráðin í að halda áfram sjálfstæðu skapandi starfi okkar og styðja samfélagið sem við höfum byggt upp í kringum það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set