Linda Pétursdóttir, lífþjálfi og fyrrum Ungfrú Ísland og Ungfrú Heimur, er orðin 55 ára og lifir lífinu á eigin forsendum.
Linda segist hafa geta sparað sér ómældan sársauka ef hún skilið og tileinkað sér fyrr það sem hún lifir fyrir í dag.
„Ég er 55 ára – og lifi lífinu á eigin forsendum.
Ég komst ekki þangað af því að lífið hafi alltaf verið dans á rósum, heldur af því að ég hef unnið mig í gegnum allskyns verkefni og áskoranir –og alltaf haldið áfram.
Ég hefði hinsvegar sparað mér ómældan sársauka ef ég hefði skilið og tileinkað mér fyrr, það sem ég lifi eftir í dag:
Að það sem aðrir hugsa og segja um mig er þeirra – ekki mitt.
Að ég skulda engum útskýringar á því hvern ég elska, markmiðum mínum eða hvernig ég vel að lifa lífi mínu.
Að ég má breytast, skipta um skoðun, byrja upp á nýtt –án þess að biðja um leyfi eða fá samþykki annarra.
Og eitt það dýrmætasta við að eldast?
Að finna ró í því að vera trú sjálfri mér – óháð því hvað öðrum finnst.“