fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Stefnir leynileg valdaklíka að nýrri heimskipan bakvið tjöldin?

Fókus
Sunnudaginn 27. júlí 2025 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimurinn versnandi fer, hugsa margir um þessar mundir enda hafa fréttirnar utan úr heimi verið ógnvekjandi síðustu misseri. Stríð, sundrung í samfélögum, farsóttir, verðbólga, ofbeldi, hryðjuverk, upplausn og óreiða hafa verið áberandi síðustu ár. Blaðamaður Fókus er eiginlega kominn með nóg af því að heyra að hann lifi á sögulegum tímum og dreymir um hreint ómerkilega tíma. Jafnvel bara meðaltíma.

En er þessi þróun viljaverk? Eru valdamiklir hópar að vinna að því statt og stöðugt á bak við tjöldin að ala á hræðslu til að tryggja sér smátt og smátt heimsyfirráð? Þeir sem trúa samsæriskenningunni um nýju heimsskipunina telja að svo sé.

Okkar samsærissérfræðingar í hlaðvarpinu Álhatturinn taka þessa þekktu kenningu fyrir í nýjasta þætti sínum.

Nýja heimsskipanin

Í lýsingu þáttar segir:

„Til er fólk sem trúir því staðfastlega að heimurinn sé í óreiðu vegna vankunnáttu, mistaka, vanhæfni stjórnmálafólks eða einhvers konar náttúrulegs glundroða. En svo eru aðrir, sem sumir hafa útnefnt Álhatta, sem telja að heimurinn sé í raun þaulskipulagður af myrkum og illum öflum og að heimurinn sé vísvitandi að versna vegna áætlana þessara afla.

Kenningin um hina svokölluðu nýju heimsskipan „New World Order“ (NWO) er líklega ein sú langlífasta og yfirgripsmesta af þeim öllum. Þar er því haldið fram að leynileg alþjóðleg elíta og nokkurs konar valdaklíka úr röðum stjórnvalda, bankamanna og iðnjöfra vinni í skjóli nætur að því að koma á nýrri heimsskipan. Heimi þar sem þjóðríki eru leyst upp, sjálfsákvörðunarréttur landa afnuminn, og mannkynið situr allt undirgefið undir grjóthörðu miðstýrðu eftirlitskerfi elítunnar.

En hverjir eru þessir huldumenn og konur í myrku reykfylltu bakherbergjunum? Er þetta bara öfgakennt rugl og þvaður einhverra vitfirringa með alvarlegar ranghugmyndir eða vel skjalfest saga sem teygir sig langt aftur? Hvernig tengist þetta Bilderberg-hópnum, frímúrarareglunni, WEF og World Bank? Var Maastrichtar-sáttmálinn bara eitt smátt skref í átt að NWO? Og hvers vegna er eins og enginn hafi nokkurn tíman kosið um þessa „framtíðarsýn“? Hvar er lýðræðið í því.

Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum velta þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór því fyrir sér hvort að NWO sé raunveruleg þaulskipulögð áætlun voldugra afla, til að sameina heiminn undir einni risavaxinni alheimsstjórn, sem mun stýra almenningi eins og Sims-karakterum. Eða hvort það sé einfaldlega einn stór misskilningur, þar sem ræðuhöld og opinberar stefnumótandi áætlanir hafa verið rangtúlkaðar af tortryggnum netverjum með fullmikinn frítíma.

Hvað er það sem veldur því að þessi kenning heldur áfram að lifa og dafna? Hverjir eiga að fá að ráða í hinni nýju heimsskipan og hverjir verða undir? Hvað felst í slagorðum eins og „Build Back Better“, „The Great Reset“ og „One World Government“ þegar þau eru skoðuð í samhengi við valdafólk á Davos? Þetta og svo margt, margt fleira í nýjasta þætti Álhattarins, sem er einungis fyrri hlutinn af tveimur, þar sem þeir félagar velta því fyrir sér hvort leynileg valdaklíka stefni að hinni nýju heimsskipan (e: new world order) bakvið tjöldin“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi