Bandaríska leikkonan Sharon Stone, sleppti brjóstahaldaranum og klæddist gegnsæjum topp í glæsilegri nýrri ljósmyndatöku fyrir júnítölublað Vogue Adria.
Á myndinni má sjá Stone, sem er 67 ára, horfa í myndavél ljósmyndarann Branislav Simoncik. Karlmaður lyftir Stone á öxl sér meðan hópur karlmanna umkringir þau.
Allar myndirnar eru svart hvítar og ásamt Stone eru um 20 karlkyns fyrirsætur í myndaröðinni. Á einni mynd er leikkonan í svörtum kjól í gamaldags Hollywood-stíl, á annarri klæðist hún hvítum jakkafötum, sem minna á mynd hennar Basic Instinct frá níunda áratugnum.
Á forsíðumynd blaðsins klæðist Stone demin galla umkringd körlum, á meðan einn þeirra dansar á gólfinu fyrir framan þau. Á annarri forsíðumynd með fyrirsögninni: „Sharon Stone: Þar sem nánd mætir valdi“ er Stone klædd í gegnsæjan kjól yfir svörtum brjóstahaldara og nærbuxum.
Vogue Adria kynnti blaðið á Instagram á miðvikudag en í blaðinu er einnig viðtal við Stone.
„Hún notar áhrif sín til að breyta heiminum (og tekst það vel) með því að einbeita sér að heilsu, réttlátara samfélagi og lífi með reisn fyrir alla,“ segir í færslunni og að í viðtalinu „tali Stone um verkefnin sem hún vinnur að núna, hvernig hún tekst á við erfiða tíma og hvað hún hlakkar til.“
View this post on Instagram
View this post on Instagram
Stone opnaði sig nýlega um öldrun og líkamsást.
„Margir gefast upp þegar þeir eldast,“ sagði hún við Times í viðtali í mars. „Þeir hætta að huga að líkama sínum vegna þess að hann er hvort eð er að hrynja, eða þeir: „Ég er ekki lengur skilgreindur af líkama mínum.“ En maður verður samt að elska þennan líkama.“
Eftir að hafa grínast með að „handarkrikar hennar séu með fellingar núna“ benti Stone á jákvæðu hliðarnar.
„Ég hugsa: „Jæja, ég átti fallega handleggi og núna eru þeir sterkir og eins og englavængir.“ Hvað með það þó þeir séu með fellingar? Kannski er það það sem gerir þá frábæra núna.“