fbpx
Föstudagur 30.maí 2025
Fókus

Frúin gengur frá milljarðasamningi meðan Bieber glímir við fjárhagsvandræði

Fókus
Fimmtudaginn 29. maí 2025 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hailey Bieber er nýbúin að skrifa undir milljarða dollara samning vegna vinsæls snyrtivörumerkis hennar, Rhode. Fyrirtækið tilkynnti á miðvikudag að samkomulag hefði verið undirritað við e.l.f. Beauty.

Bieber, sem er 28 gömul, greindi frá í færslu á Instagram:

„Þegar ég setti Rhode á markað árið 2022, dreymdi ég alltaf stóra drauma fyrir fyrirtækið og það mikilvægasta fyrir mig er að halda áfram að koma Rhode á fleiri staði og andlit á heimsvísu. Í dag er ég svo ótrúlega spennt og stolt að tilkynna að við erum í samstarfi við e.l.f. Beauty þegar við stígum inn í þennan næsta kafla í heimi Rhode. Ég fann aðila sem hefur sömu sýn og ég, að vera öðruvísi fyrirtæki sem trúir á stórar hugmyndir og nýsköpun á sama hátt og ég og mun hjálpa okkur að halda áfram að efla vörumerkið.“

Bieber sagði að samningurinn hefði leitt til þess að henni „finnst hún endurnærð, spennt og tilbúnari en nokkru sinni fyrr til að stíga inn í enn stærra hlutverk sem framkvæmdastjóri skapandi sviðs, og yfirmaður nýsköpunar Rhode sem og stefnumótandi ráðgjafi e.l.f. Beauty. Þakkaði hún ótrúlegu teymi sínu og sagði að hún gæti ekki hafa gert þetta allt án þeirra allra. Einnig þakkaði hún tryggum viðskiptavinum sínum og sagði að þetta væri bara byrjunin.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Hailey Rhode Bieber (@haileybieber)

Nýjasta viðskiptaafrek Bieber kemur í kjölfar frétta um að eiginmaður hennar, Justin Bieber, eigi við fjárhagsvanda að etja. Í marga mánuði hefur verið greint frá því að poppstjarnan, sem er 31 árs, hafi safnað skuldum eftir að hafa hætt við Justice tónleikaferð sína árið 2022.

Page Six frétti frá fyrr í þessum mánuði að fyrrverandi umboðsmaður Bieber, Scooter Braun, hefði lánað honum peninga til að standa skil á skuldum vegna tónleikaferðinnar, mun upphæðin nema átta milljónum dala.

Í október síðastliðnum var einnig greint frá því aðBieber, sem er metinn á 300 milljónir dala og seldi tónlistarskrá sína fyrir 200 milljónir dala árið 2022, væri að íhuga að kæra fjármálastjóra sína fyrir að hafa sóað 300 milljónum dala af auðæfum sínum.

„Hann eyðir ógnvekjandi upphæðum á mánuði. Á einum tímapunkti gat hann ekki einu sinni fengið kreditkort. Justin er umkringdur fullt af fólki sem hefur ekki hagsmuni hans að leiðarljósi.“

Fulltrúi Bieber hefur þó alfarið neitað öllum fjárhagsvandræðum og sagði sem svar við frétt Hollywood Reporter um fullyrðingarnar: „Sérhver heimildarmaður sem er að reyna að selja þér sögu um meintan fjárhagsvanda … skilur annaðhvort ekki skemmtanaiðnaðinn eða, líklegast, er að reyna að mála ósmekklega mynd af Justin, sem líkist ekki raunveruleikanum.“

Á sama tíma hafa heimildarmenn staðfest við Page Six að Hailey sé „100 prósent fyrirvinnan núna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Bandarískir swingerar á kynlífssiglingu í kringum Ísland – Byrja í Reykjavík en fara svo til Húsavíkur

Bandarískir swingerar á kynlífssiglingu í kringum Ísland – Byrja í Reykjavík en fara svo til Húsavíkur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjö ára martröð byrjaði eftir að kærastinn prumpaði framan í hana

Sjö ára martröð byrjaði eftir að kærastinn prumpaði framan í hana
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dramað nær nýjum hæðum: Blokkaði vinkonurnar – „Best að hann fari bara að borða franskarnar sínar“

Dramað nær nýjum hæðum: Blokkaði vinkonurnar – „Best að hann fari bara að borða franskarnar sínar“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – Veiðiferð, skvísur á Formúlunni og alvöru stelpudjamm

Vikan á Instagram – Veiðiferð, skvísur á Formúlunni og alvöru stelpudjamm
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragnhildur segir okkur að hætta að bera okkur saman við aðra – Gerðu þetta í staðinn

Ragnhildur segir okkur að hætta að bera okkur saman við aðra – Gerðu þetta í staðinn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Brooklyn með skýr skilaboð – Stendur með eiginkonunni gegn foreldrunum

Brooklyn með skýr skilaboð – Stendur með eiginkonunni gegn foreldrunum