fbpx
Miðvikudagur 22.október 2025
Fókus

Dimmey lýsir óhugnanlegri upplifun: „Fimm mínútum seinna kannaðist ég ekki við neinn í kringum mig“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 20. apríl 2025 10:30

Dimmey Rós Lúðvíksdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dimmey Rós Lúðvíksdóttir var um sextán ára gömul þegar hún byrjaði að fá mígreni. Það tók langan tíma að fá greiningu og lýsir hún einstaklega svæsnu kasti þar sem hún endaði á bráðamóttöku og virtust einkennin benda til þess að hún væri með heilablóðfall.

Dimmey er gestur vikunanr í Fókus, viðtalsþætti DV. Í spilaranum hér að neðan ræðir Dimmey um baráttu sína við mígreni og kerfið, en brotið er hluti af nýjasta þætti af Fókus sem má horfa á í heild sinni hér, eða hlusta á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum.

video
play-sharp-fill

„Þegar ég var 16-17 ára byrjaði ég að fá mígrenisköst, aðallega á morgnanna, og svaf til 15-16 á daginn og gat ekki farið úr herberginu mínu. Á kvöldin var ég þá vakandi og vakti of lengi og fékk þá aftur mígreni daginn eftir. Þetta var svona í nokkra mánuði þar til ég fattaði að það væri eitthvað í gangi þarna.“

Það tók tíma að fá greiningu og að fá einhvern til að hlusta og taka henni alvarlega. Dimmey lýsir mjög alvarlegu mígreniskasti sem hún fékk 2022 þar sem hún var flutt á bráðamóttöku og lýstu einkennin sér eins og hún væri að fá heilablóðfall.

Dimmey Rós tók þátt í Ungfrú Ísland í byrjun apríl. Mynd/Arnór Trausti

„Ég var í vinnunni og það var ekkert álag eða neitt svoleiðis í gangi, þetta var í lok vaktar. Ég allt í einu skildi ekki manninn sem var að tala við mig, hann var að tala við mig á ensku. Ég sagði við hann: „Ertu til í að tala ensku?“ Því ég hélt að hann væri að tala eitthvað annað tungumál og ég skildi ekki neitt sem hann sagði. Ég sneri mér við og samstarfskona mín var þar tað tala við mig á íslensku en ég skildi ekki hvað hún var að segja og ég bað hana um að tala rétt,“ segir hún.

Dimmey segir að þetta hafi verið mjög skrýtið. „Fimm mínútum seinna kannaðist ég ekki við neinn í kringum mig, en ég var umkringd starfsfólki sem ég þekki ótrúlega vel.“

Hún þekkti heldur ekki yfirmann sinn sem leist ekki á blikuna og hringdi í sjúkrabíl.

„Ég fór upp á slysó og þau vissu ekkert hvað væri að mér. Ég var með svima og vissi ekkert hvar ég var, ég var hrædd. Svo nokkrum mánuðum seinna komst ég í heilaskanna (MRI),“ segir hún.

Dimmey Rós Lúðvíksdóttir.

„Örugglega bara mígreni“

Það liðu um fjórir til fimm mánuðir frá atvikinu og þar til hún komst í skanna. „Þá var sagt við mig að það væri bólga einhvers staðar í heilanum en að þetta væri örugglega bara út af mígreni.“

Hún segir að það hafi verið óþægilegt að fá ekki staðfest hvað vandamálið væri, fá bara að heyra að þetta væri „örugglega bara mígreni“ en ekki vita það fyrir vissu. Hún er enn þann dag í dag hrædd um að sagan endurtaki sig.

Dimmey lenti í fimmta sæti. Mynd/Arnór Trausti

Dimmey ræðir þetta nánar í spilaranum hér að ofan. Brotið er hluti af nýjasta þætti af Fókus, viðtalsþætti DV, sem má horfa á í heild sinni hér, eða hlusta á Spotify. Dimmey ræddi einnig um fordómana sem hún og kærastan hennar verða fyrir á Íslandi og Ungfrú Ísland ævintýrið.

Fylgstu með Dimmeyju Rós á Instagram og TikTok.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Heimsins besti dagur í helvíti – Hvað gerir ofurkona þegar lífið breytist með kómísku slysi?

Heimsins besti dagur í helvíti – Hvað gerir ofurkona þegar lífið breytist með kómísku slysi?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Lítt þekkt ættartengsl: Gugga í gúmmíbát náskyld Þorsteini frá Hamri og Matta Matt

Lítt þekkt ættartengsl: Gugga í gúmmíbát náskyld Þorsteini frá Hamri og Matta Matt
Fókus
Fyrir 2 dögum

Elli Egils opnar sig um fjölskyldulífið: „Við höfum svo ættleitt tvær stelpur af þessum átta börnum“

Elli Egils opnar sig um fjölskyldulífið: „Við höfum svo ættleitt tvær stelpur af þessum átta börnum“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – Glæsilegar gellur á Bridgerton-viðburði og hitað upp fyrir hrekkjavöku

Vikan á Instagram – Glæsilegar gellur á Bridgerton-viðburði og hitað upp fyrir hrekkjavöku
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona eiga nýbökuðu hjónin saman: Gefa hvort öðru það sem þau þurfa mest

Svona eiga nýbökuðu hjónin saman: Gefa hvort öðru það sem þau þurfa mest
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Það hlýtur að vera ódýrara að borga vökvagjöf en að hafa okkur á örorku“

„Það hlýtur að vera ódýrara að borga vökvagjöf en að hafa okkur á örorku“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Krefst 30 milljóna á mánuði eftir skilnaðinn til að viðhalda „lúxuslífstílnum“

Krefst 30 milljóna á mánuði eftir skilnaðinn til að viðhalda „lúxuslífstílnum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Arnar rekur 70 ára sögu íslenskrar dægurtónlistar

Arnar rekur 70 ára sögu íslenskrar dægurtónlistar
Hide picture