fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
Fókus

Segir kannabis geta mætt skorti á blóðvökva

Fókus
Fimmtudaginn 6. febrúar 2025 08:22

Dr. Pavel Kubů

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðsend grein frá Alkastinu:

„Árleg áætluð eftirspurn eftir blóðvökva hefur verið um 160 milljónir lítra en um 100 milljónum lítra hefur ekki mætt,“ segir Dr. Pavel Kubů, sérfræðingur á sviði líftækni og læknisfræði, en fyrirtæki hans, Plasma for People, hefur þróað tækni sem gæti gjörbylt heilbrigðiskerfinu eins og við þekkjum það í dag. Kubů sem er með doktorspróf í læknisfræði frá Charles háskólanum í Prag, höfuðborg Tékklands, var á Íslandi nýverið og kynnti byltingarkenndar rannsóknir sínar og þróun á blóðvökva sem unninn er úr fræjum kannabisplöntunnar. Fari sem horfir mun Plasma for People setja á markað lækningavöru sem gagnast mun milljónum manna um allan heim.

Kynning Kubů vakti mikla athygli á alþjóðlegri ráðstefnu sem Hampfélagið stóð nýverið fyrir, hvort sem var hjá heilbrigðisstarfsfólki eða hampbændum, en í afar einfölduðu máli snýst tæknin um að „hreinsa” próteinið edestín úr hampfræjum þannig að það nýtist í framleiðslu blóðvökva í stað próteinsins albúmín en það síðarnefnda er eingöngu hægt að fá með blóðgjöf. Prófanir hafi þegar farið fram á dýrum, þar á meðal öpum, og gefið mjög góða raun. Kubů ræddi ítarlega um aðferðina í Hampkastinu, umræðuþætti Hampfélagsins, og benti þar meðal annars á að framboð af blóðvökva sé af skornum skammti í heiminum, kostnaður við framleiðsluna hár og í raun nauðsynlegt að finna aðgengilega og sjálfbæra leið til að framleiða blóðvökva.

Blóðvökvi er mikið notaður við skurðaðgerðir og á gjörgæsludeildum, til dæmis vegna alvarlegra sýkinga og bruna. Kubů segir að með því að setja þessa mikilvægu lækningavöru Plasma for People á markað verð hægt að bæta bráðaþjónustu, árangur skurðaðgerða og meðferðir við langvinnum sjúkdómum. Um sé að ræða hagkvæma aðferð sem útrými skorti á blóðvökva í heilbrigðiskerfum landa heimsins.

Kubů segir að tékkneskir vísindamenn hafi byrjað að rannsaka edestin á síðustu öld og að fyrirtækið hafi haldið áfram með þær rannsóknir. Plasma for People fékk einkaleyfi á vörunni árið 2008 og hefur þegar sett á markað fæðubótarefni, Bloody Vital, sem unnið úr hampfræjum með sömu aðferð. Hampfræ eru sannkölluð ofurfæða sem innihalda mikið magn af próteini og amínósýrum sem nauðsynlegar eru fyrir líkamann.

Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan en einnig má hlusta á hann á öllum helstu streymisveitum, eins og Spotify.

Sigurður Hólmar Jóhannesson, formaður Hampfélagsins, tók viðtalið við Pavel Kubů, Andri Karel skrifaði upp úr því og Mickael Lakhifi sá um tæknimál.

Nánar má lesa um starfsemi Hampfélagsins á heimasíðunni hampfelagid.is en til að mynda verður aðalfundur félagsins haldinn um miðjan mánuðinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Messi að skrifa undir
Fókus
Í gær

Systir Biöncu Censori fetar í hennar fótspor með djörfu fatavali

Systir Biöncu Censori fetar í hennar fótspor með djörfu fatavali
Fókus
Í gær

Hneyksluð yfir verðinu á Starbucks – Þetta borgaði hún fyrir tvo

Hneyksluð yfir verðinu á Starbucks – Þetta borgaði hún fyrir tvo
Fókus
Fyrir 2 dögum

Það vex á mér vömbin og spikið!

Það vex á mér vömbin og spikið!
Fókus
Fyrir 2 dögum

Konungsfjölskyldan enn og aftur sögð brjáluð út í Harry Bretaprins eftir nýlegt viðtal – „Harry kann ekki að þegja“

Konungsfjölskyldan enn og aftur sögð brjáluð út í Harry Bretaprins eftir nýlegt viðtal – „Harry kann ekki að þegja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndband af stjörnuhjónunum vekur mikla reiði

Nýtt myndband af stjörnuhjónunum vekur mikla reiði
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gugga Lísa sleppir takinu á sorginni og kveður móður sína í hinsta sinn

Gugga Lísa sleppir takinu á sorginni og kveður móður sína í hinsta sinn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjaldséð sjón: Mary-Kate og Ashley létu sjá sig

Sjaldséð sjón: Mary-Kate og Ashley létu sjá sig