Myndband af dansi Viðars Viðarssonar í brúðkaupi hefur svo sannarlega slegið í gegn á TikTok, þó stutt sé.
Í myndbandinu má sjá Viðar spariklæddan dansa við tvær konur. Þegar hann sér að systir hans, Margrét Ýr Austmann Viðarsdóttir er komin með símann á loft, spyr Viðar: „Hvað er að?“ og ákveður svo að prófa að standa á höndum mitt á dansgólfinu. Sú tilraun hefur afleiðingar í för með sér sem eru ansi óheppilegar.
@maddyyy98♬ original sound – Margrét Ý Austmann
„Þetta er ógeðslega fyndið. Maður er búinn að liggja yfir TikTok og fylgjast með þessu fara yfir milljón áhorf. Hundrað áhorf fyrir hvert „refresh,“ segir Viðar hress í samtali við K100.
Hann segir myndbandið birt með hans leyfi og að þetta hafi verið móðir þeirra Margrétar sem dans hans hefur áhrif á. Hin konan sem hann dansar við er besta vinkona móður þeirra, brúðurin eða „hin mamma hans“ eins og Viðar segir.
„Þetta var mamma mín sem ég sparkaði í. Ótrúleg tímasetning!“ segir Viðar og bendir á að lagið sem spilaði undir, Billie Jean með Michael Jackson, hafi átt skemmtilega vel við. Hann segir móður sína búna að fyrirgefa honum klaufaskapinn.
„Það er fullt annað inni á TikTok hjá henni. Alltaf þegar hún er komin með símann er eins og maður fari í einhvern trans,“ segir Viðar um systur sína, sem gjörn er að deila myndböndum úr lífi fjölskyldunnar. „Hún nær mjög góðum mómentum.“
Að lokum bendir Viðar á að brúðkaupið hafi verið algjörlega áfengislaust – svo það er ljóst að það er ekki hægt að kenna víni um klaufaskapinn.