Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, fjallar í sínum nýjasta pistli á Facebook um það að hún sé innflytjandi og hafi búið síðustu 16 ár í Danmörku. Í pistlinum segir hún ekki hafa tileinkað sér danska siði og venjur nema að örlitlu leyti.
„Naglinn er innflytjandi.
Sextán ár búsett í Baunalandi.
Talar ófullkomna dönsku með hreim.
Ólst ekki upp í dönskum kúltúr.
Og hefur ekki tileinkað sér siði og venjur Danans nema að örlitlu leyti.
Þekkir ekki einn einasta danska áhrifavald.
Hlustar ekki á danska tónlist nema klassíkera úr áttunni og níunni.
Finnst dönsk stjórnmál drepleiðinleg.
Fagnar ekki Mortensaften. Étur ekki kransaköku á gamlárskvöld. Bakar ekki bollur á Stóra Bænadeginum.
Les ekki Se og Hør eða Billed bladet.
Er drull um hvaða raunveruleikastjarna var að skilja.
Finnst flæskesteg viðbjóður.
Danskt nammi mjög bragðvont.
Anton Berg örugglega framleitt í forgarði Helvítis.
Smørrebrød ofmetin Júmbó samloka.
Bulow lakkrísinn bragðlaus stuldur á Kúlusúkki.“
Ragga segir að í vinaneti hennar séu að mestu leyti Íslendingar, hún mæti á íslensk þorrablót, jólaböll og þrettándagleði.
„Hefur verið 13 ár á snúrunni og drekkur því aldrei bæjara og því ekki hundsvit á Tuborg, Carlsberg eða Mikkeller.
Heldur ALDREI með Danmörku í fótbolta og bara í handbolta þegar Danir spila við Frakkland.
Finnst Danir of grobbnir og kokhraustir fyrir hvern leik, en aðallega biturð djúpt í sálinni yfir fjölmörgum tapleikjum Íslendinga við Baunann.
Hefur núll áhuga á borðtennis og badminton.
Naglinn hefur komist í kast við lögin í Danmörku og var tekin af politimand fyrir að keyra á 70 km hraða þar sem hámarkshraði var 50 km/h.“
Ragga snýr sér næst að öðrum þjóðernum og segir að hinu megin götunnar sé fjölbýlishús þar sem 99% eru innflytjendur frá Tyrklandi, Írak, Íran, Pakistan. Í næstu götu er stærsta moskan á Norðurbrú, og streyma þangað kuflaklætt íslamstrúað fólk mörgum sinnum á dag, og í unnvörpum á föstudögum.
Segist Ragga aldrei hafa upplifað vesen af þessu návígi við önnur trúarbrögð og menningu.
„Naglinn elskar að fara á kebabstað hér á Norðurbrú Kaupmannahafnar, einu stærsta samfélagi múslima á Norðurlöndum og löðra í sig grillkjöti, bulgur og hummus.
Og elskar líka að borða indverskan, víetnamskan, tælenskan, marokkóskan og sushi.
Allur þessi matur er eldaður og/eða undir innblæstri innflytjenda í Danmörku.“
Bendir Ragga svo á nokkra alkunna menn sem allir voru innflytjendur:
„Jón Sigurðsson var innflytjandi í Danmörku.
Albert Einstein og Arnold Schwarzenegger innflytjendur í Bandaríkjunum.
Freddie Mercury innflytjandi í Bretlandi.
Zlatan Ibrahimovic er innflytjandi í Svíþjóð.
Hefðu þessar þjóðir viljað segja þeim að drulla sér heim útlendingapakk?“
Ragga heldur áfram:
„Ef ekki væri fyrir innflytjendur á Íslandi væri ekki marókkoskur veitingastaður á Siglufirði, Nings á Suðurlandsbraut, Vietnam á Laugavegi, Mandí í Skeifunni.
Við myndum þá bara éta soðna ýsu með hamsatólg undir dánarfregnum og jarðarförum á Gufunni.
Í Kaupmannahöfn er kirkja Íslendinga.
Rétt eins og bænahús múslima verður á Suðurlandsbraut.
Samkomustaður til að hitta landa sína, og iðka sína trú.
Enginn Dani hefur sagt óumbeðið í kommentakerfi að Íslendingar séu afætur og óþjóðalýður og ættu að hundskast heim til sín.
Ekki ein einasta hræða hefur sagt við Naglann: „Þú ert ekki velkomin hér útlendingaógeð“.
Aldrei fengið yfir sig holskeflu fúkyrða fyrir að hafa ekki aðlagast dönsku samfélagi og tekið upp þeirra siði og venjur.
Þjóðernisrembingurinn er af sauðahúsi nasista í orðræðunni hjá virkum í athugasemdum.
Hættum að ala á skautun, tortryggni og útlendingahatri.
Gröfum frekar eftir samkennd og virðingu.
Sýnum náungakærleika og komum fram við innflytjendur á Íslandi eins og við viljum að sé komið fram við okkur þegar við tökum okkur búsetu á erlendri grund.
Fjölmenning gerir mannlífið litríkara og fjölbreyttara og úðar yfir okkur víðsýni og þroska.“