Fjölmörgum gallhörðum aðdáendum sveitarinnar tókst ekki að krækja sér í miða áður en seldist upp á alla tónleikana. Og þeim sem tókst að tryggja sér miða þurftu sumir að greiða býsna hátt verð fyrir þá.
Ticketmaster var opinber samstarfsaðili sveitarinnar varðandi miðasölu en gríðarleg eftirspurn eftir miðum keyrði miðaverð upp í rjáfur. Ticketmaster notast við svokallaða dýnamíska verðlagningu (e. dynamic pricing) sem þýðir að miðaverð hækkar í takt við aukna eftirspurn. Voru dæmi um að miðar hækkuðu í verði um 200 pund, 36 þúsund krónur, á meðan fólk beið í röð.
Liam setti færslu inn á X í morgun þar sem hann sýndi að margra mati heldur mikinn hroka.
„Oasis er komin aftur, ekkert að þakka. Ég heyri að ANDRÚMSLOFTIÐ ER ÖMURLEGT. Gott að vita að ekkert breytist,“ sagði hann og endaði færsluna á þessu orði: LFUCKING x.“
Einn aðdáandi sagðist ekki hafa átt von á því að hljómsveitin myndi rýja aðdáendur sína inn að skinni og því svaraði Liam svona: „ÞEGIÐUׅ (e. SHUTUP)“.
Þegar hann var spurður hvort hann ætti einhverja aukamiða sagðist hann eiga heilan helling. „En þeir eru mjög dýrir. 100 þúsund pund, krjúpandi.“
Og þegar hann var spurður hvernig honum liði vegna málsins sagðist hann vera býsna kokhraustur og góður með sig. „Bara að grínast. Ég er þrælmontinn með mig (e. smug as f***). Ég sagði ykkur að við kæmum aftur saman einn daginn.“
Sveitin tilkynnti í vikunni að tveimur tónleikum að minnsta kosti yrði bætt við vegna gríðarlegrar eftirspurnar eftir miðum. Þá varpaði sveitin ábyrgð á umboðsmenn sína vegna þess hvernig staðið var að miðasölunni en margir hafa gagnrýnt það að notast hafi verið við dýnamíska verðlagningu. Hljómsveitin hefði sjálf getað komið í veg fyrir það.