fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Fókus

Guðrún Nanna blæs á mýtur um vinsælan morgunverð

Fókus
Föstudaginn 23. febrúar 2024 09:29

Guðrún Nanna Egilsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðrún Nanna Egilsdóttir, meistaranemi í næringarfræði, segir að það sé mikil synd að undanfarið hafi farið að kræla á allskonar „misgáfulegum sögusögnum“ um vinsælan morgunmat.

Hún er að tala um hafragraut, sem lengi hefur verið vinsæll morgunmatur, enda bragðgóður, ódýr og einfalt að búa til.

„Þessar mýtur hafa náð þó nokkuð miklu flugi og farið að valda því að sumir hreinlega forðast það að borða gamla góða hafragrautinn og aðrar hafravörur af ótta við að hann sé ekkert svo góður heilsunni eftir allt saman,“ segir hún í pistli á Vísi.

Guðrún Nanna segir þetta vera mikla synd. „Þar sem að Íslendingar borða allt of lítið af trefjum og hafragrautur hefur lengi verið einn af fáum trefjagjöfum Íslendinga. Það er því mikill missir að taka þennan góða trefjagjafa út,“ segir hún.“

„Þegar að ég frétti svo að leikskólar eru farnir að fá pressu frá foreldrum að taka út hafragrautinn fyrir börn vegna útbreiddra mýta sem eru í gangi þá fannst mér rétt að leiðrétta aðeins nokkur atriði.“

Guðrún Nanna fer yfir mýturnar sem hafa verið í gangi undanfarið og leiðréttir þær. Við gefum henni orðið:

„Mýta 1 – Hafragrautur inniheldur ekki mikla næringu og er því ekki góður kostur sem morgunmatur

Sannleikur:

Hafragrautur er mjög næringarríkur en hann er bæði trefjaríkur og inniheldur ýmis vítamín og steinefni eins og járn, magnesíum, sink, selen og B-vítamín. Hann inniheldur þar að auki andoxunarefnið pólýfenól sem hefur bólgueyðandi eiginleika. Hafrar hafa hæga blóðsykurssvörun, geta lækkað kólesteról í blóði, hafa góð áhrif á þarmaflóruna og blóðþrýstingsstjórnun.

Mýta 2 – Hafragrautur veldur mikilli blóðsykurshækkun vegna hás kolvetnainnihalds.

Sannleikur:

Meðal kornvara sýna hafrar hvað hægustu blóðsykurssvörunina, sem þýðir að þeir hækka blóðsykur hægt miðað við aðrar kornvörur. Til þess að hægja svo enn meira á blóðsykurshækkun má bæta hnetusmjöri/möndlusmjöri út á grautinn og jafnvel fræjum. Þá hefur vinnslustig hafrana einnig áhrif á hversu hratt blóðsykur hækkar og eru tröllahafrar og stálslegnir hafrar t.d. góðir kostir.

Mýta 3 – Hafragrautur inniheldur fýtatsýru sem hindrar upptöku ýmissa næringarefna.

Sannleikur:

Fýtatsýra hindrar ekki upptöku á neinum efnum en getur dregið úr upptöku á járni, sinki, magnesíum og kalki. Það á bara við ef þessi efni eru borðuð í sömu máltíð en önnur efni í fæðunni vinna gegn þessu og auka upptöku eins og t.d. C vítamín en það eykur upptöku járns. Með því að leggja hafra í bleyti eins og í overnight oats má brjóta fýtatsýruna niður og auka þannig upptökuna á næringarefnum.

Mýta 4 – Hafragrautur inniheldur mikið magn af skordýraeitrinu glýfosat sem er skaðlegt

Sannleikur:

Hafrar innihalda 0.703 mg/kg af glýfosati en samkvæmt EFSA er örugg inntaka glýfosats 0.5 mg á dag á hvert kg líkamsþyngdar. Manneskja um 80 kg þyrfti því að borða 56,9 kg af höfrum eða um 1422 skálar af hafragraut á dag til að fara yfir efri mörk. Þar að auki losar mannslíkaminn það litla magn sem við innbyrðum út á um 48 klukkustundum og því ekki mikið áhyggjuefni. Þá má líka nefna að það sama á við um seríos sem að er hafravara sem að hefur líka verið umtöluð að undanförnu.

Það er því ljóst að ekki þarf að hafa áhyggjur af hafragrautnum góða og er hann bæði næringarríkur og mikilvægur trefjagjafi sérstaklega í ljósi þess að Íslendingar borða almennt alltof lítið af trefjum. Ég vona að eftir þennan lestur að þið haldið áfram að borða næringarríka hafragrautinn óhrædd.“

Guðrún Nanna heldur úti Instagram-síðunni @naeringogjafnvaegi og birtir þar ýmsan fróðleik um næringu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum