fbpx
Laugardagur 25.janúar 2025
Fókus

Komst að því að kærastinn væri í áskrift á OnlyFans – Fékk áfall þegar hún sá hjá hverri

Fókus
Föstudaginn 6. desember 2024 11:15

Simone. Skjáskot/TikTok

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framhjáhald er mjög alvarlegt brot í samböndum en það getur verið fín lína á milli skilgreininga fólks á framhjáhaldi. Sumir líta svo á að horfa á klám sé framhjáhald á meðan aðrir gera það ekki. Mörgum þykir það svik þegar maki er í áskrift hjá einstakling á OnlyFans og það þótti henni bandarísku Simone.

Hún tók eftir því að kærasti hennar væri í áskrift hjá OnlyFans en þegar hún komst að því hjá hverri hann væri í áskrift fór veröld hennar á hvolf.

Simone sagði nýlega sögu sína í myndbandi á TikTok sem hefur vakið mikla athygli. Þetta allt skeði fyrir nokkrum árum, þegar OnlyFans var frekar nýtt af nálinni.

„Ég vissi að eitthvað væri í gangi, það var eitthvað grunsamlegt við þennan gæja,“ segir hún um fyrrverandi kærasta sinn.

„Hann dýrkaði systur sína og systir hans hataði mig, af einhverri ástæðu,“ segir hún.

Simone sá tækifæri þegar kærastinn fór á klósettið og skildi eftir símann sinn frammi, ólæstan. Hún fór í gegnum tölvupóstinn hans og fann þar reikning frá OnlyFans sem sýndi að kærastinn hennar væri í áskrift.

„Svo sá ég hjá hverri hann var í áskrift hjá… systur sinni.“

OnlyFans Announces the Launch of OFTV, a New Streaming Platform and App

Simone talaði við hann um leið og hann kom út af baðherberginu.

„Hann fór strax í vörn og lét eins og hann væri fórnarlambið,“ segir hún.

„Ég spurði af hverju hann væri í áskrift hjá systur sinni og hann sagði: „Ég var bara að athuga hvað hún væri að gera á síðunni, hún á ekki að vera að þessu. Bla, bla, foreldrar mínir sögðu mér að gera þetta.“ Höfum það á hreinu að umrædd systir er eldri en hann og bjó ekki lengur í foreldrahúsum.“

Simone segir að hún hafi á þessum tímapunkti ákveðið að fara og segja þetta gott. „Öll fjölskylda hans var þarna og heyrði okkur rífast,“ segir hún.

@siiimiii Replying to @Natalie Jean 🌹 which story next?? #fyp #caught #cheating #storytime ♬ Jazz Bossa Nova – TOKYO Lonesome Blue

Simone fékk stuttu seinna símtal frá frænda fyrrverandi kærastans sem hafði heyrt af atvikinu.

„Hann sagði mér að minn fyrrverandi og systir hans væru að gera óviðeigandi hluti saman og hefðu verið að gera það í einhvern tíma. Hann sagði að það væri myndband af þeim á OnlyFans-síðu hennar, það sæist ekki í andlit fyrrverandi kærasta míns en fólk sem þekkir hann fattar alveg að þetta sé hann.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Feðgarnir Davíð og Þorvarður sögðu upp störfum til að elta drauminn – „Við ákváðum að kýla á þetta og stofna fyrirtæki saman“

Feðgarnir Davíð og Þorvarður sögðu upp störfum til að elta drauminn – „Við ákváðum að kýla á þetta og stofna fyrirtæki saman“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hélt að hún væri að taka inn Ozempic – „Ekki gera þetta. Ég dó næstum því“

Hélt að hún væri að taka inn Ozempic – „Ekki gera þetta. Ég dó næstum því“
Fókus
Fyrir 3 dögum

VÆB svara fyrir sig: „Persónulega finnst okkur þetta gjörólík lög“

VÆB svara fyrir sig: „Persónulega finnst okkur þetta gjörólík lög“
Fókus
Fyrir 3 dögum

George W. Bush stal senunni í gær – Sjáðu myndbandið

George W. Bush stal senunni í gær – Sjáðu myndbandið