Fókus

Þetta eru karlarnir sem þykja bestu rekkjunautarnir

Mynd

4.550 konur hafa skýrt frá hvernig karla þær vilja helst hafa með í bólið til að stunda kynlíf. Getur verið að þær hafi rétt fyrir sér? Hvað gerir karla góða í bólinu? Er það lengdin, sverleikinn, takturinn eða eitthvað allt annað?

Það eru margar skoðanir á hvað sé gott kynlíf en miðað við niðurstöður könnunarinnar þá eru það fimm atriði hjá körlum sem skera sig úr þegar kemur að frammistöðu þeirra í kynlífinu. The Sun skýrir frá þessu.

Hér eru niðurstöðurnar síðan fyrir þá sem vilja fræðast meira um hvað konurnar 4.550 sögðu.

Skegg – 73% þeirra sögðu að sumar af bestu upplifunum þeirra í kynlífi hafi verið með skeggjuðum mönnum. Hugsanlega tengist það því að skeggjaðir karlar eru oft taldir vera karlmannlegri og villtari. Það virðist skila sér í kynlífið.

Brún augu – Brún augu er eitthvað sem fær konur til að kikna í hnjánum. 71% þeirra sögðu að kynlíf með brúneygðum körlum hefði verið með því besta sem þær hefðu stundað.

Hringir á ýmsum stöðum – 70% sögðu að karlar með hringi eða annað álíka sem er sett í göt á líkamanum, til dæmis eyrnalokkar, séu bestu rekkjunautarnir. Þær skýrðu samt ekki frá hvar best sé að þessir hringir eða skraut sé staðsett.

Herðabreiðir – Herðabreiðir karlar þykja einnig góðir rekkjunautar en 68% kvennanna sögðu að kynlíf með herðabreiðum körlum hafi verið mjög gott.

Húðflúr – 62% sögðu að húðflúraðir karlmenn væru góðir rekkjunautar en ekki kemur fram hvort einhver sérstök húðflúr séu betri en önnur eða hvort þau eigi að vera stór eða lítil.