Allt logar í fegurðarbransanum í Bandaríkjunum eftir að tvær fegurðardrottningar ákváðu með nokkra daga millibili að afsala sér titlum sínum í kjölfar ásakana um einelti og andlegt ofbeldi yfirboðara keppnanna.
Noelia Voigt, Miss USA, sendi frá sér tilkynningu í byrjun vikunnar að hún hygðist afsala sér titli sínum í þágu andlegrar heilsu sinnar. Voigt hafði borið titilinn í sjö mánuði en hún er fyrsta konan í 72 ár til þess að afsala sér Miss USA-titlinum.
Tíðindin vöktu því mikla athygli en ekki síst í ljósi þess að yfirlýsing Voigt virðist innihalda falin skilaboð. BBC er meðal þeirra miðla sem fjallaði um þá staðreynd að fyrsti stafurinn í hverri málsgrein í yfirlýsingunni myndaði setninguna „I AM SILENCED“ eða „Það er verið að þagga niður í mér“.
Ástandið var því eldfimt þegar hin 17 ára gamla UmaSofia Srivastava, handhafi Miss Teen USA, ákvað sömuleiðis að afsala sér titli sínum. Sagði hin unga fegurðardrottning í yfirlýsingu að persónuleg gildi sínu færu ekki saman við gildi þeirra sem eiga og reka Miss Teen USA-keppnina.
New York Post fjallaði ítarlega um málið en í umfjölluninni kemur fram að fegurðardrottningar tvær hefðu tekið höndum saman um að hverfa á braut enda voru þær við það að bugast yfir ómannlegum vinnuaðstæðum og því eitraða andrúmslofti sem ríkti meðal stjórnenda keppnanna.
Voigt hafi til að mynda vaknað á nálum hvern dag við tölvupósta og skilaboð frá yfirboðurum sínum sem innihéldu ýmsar skipanir, boð og bönn. Til að mynda var samfélagsmiðlanotkun Voigt undir smásjá og færslur skrifaðar fyrir hana. Þá var henni skipað að læka sumar færslur og aflæka aðrar sem hún hafði ef til vill leyft sér að bregðast við. Þá var hún með afar ítarlega dagskrá á hverjum degi og því fylgdu leiðbeiningar um við hverja hún mátti tala og hverja hún átti að hunsa.
Óhlýðnaðist hún þá ætti hún yfir höfði sér lögsókn og samningsriftun.
Hin unga Srivastava upplifði svipað álag og nokkru áður en hún afsalaði sér titlinum höfðu foreldrar hennar stigið inn í og til að mynda bannað bein samskipti stjórnenda við dóttur þeirra.
Málið hefur vakið mikla athygli vestra og skapað miklar umræður um andlega heilsu þeirra sem að lifa og hrærast í fegurðardrottningabransanum.