fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

„Það óskar sér enginn að vera með fíknisjúkdóm og fyrir 3 árum var ég á mjög slæmum stað“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 8. febrúar 2023 12:24

Dóra Jóhannedóttir. leikstjóri Áramótaskaupsins

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrjú ár eru liðin síðan Dóra Jóhannsdóttir, leikkona og leikstjóri, sagði skilið við áfengi og fíkniefni. Hún fagnar áfanganum í einlægri færslu á Facebook.

Dóra leikstýrði seinasta Áramótaskaupi, en hún segir að verkefnið hafi verið langþráður draumur sem megi þakka edrúmennskunni fyrir að hafi verið uppfylltur. Hún fer yfir þann lærdóm sem hún hefur sankað að sér á þessum þremur árum.

„Þvílíkt ferðalag! Það óskar sér enginn að vera með fíknisjúkdóm og fyrir 3 árum var ég á mjög slæmum stað, orðin mjög veik. Vinkona mín Dora Einarsdottir minnti mig nýlega á að á þessum degi fyrir 3 árum sagði ég henni buguð og brotin á leið í fimmtu meðferðina að mig dreymdi um að leikstýra Skaupinu einn daginn. Ég veit það fyrir víst að ég hefði aldrei getað uppfyllt þann draum ef ég hefði ekki náð að verða edrú,“ segir hún.

„Ég er í bata í dag og þetta er m.a það sem hefur hjálpað mér og vinnur allt saman: 12 spora samtök eru með ókeypis stórkostleg prógröm fyrir alla sem díla við einhversskonar fíknir eða meðvirkni. SÁÁ, Vogur og Vík gerðu mikið fyrir mig og loks meðferðin í Svíþjóð, sem er því miður búið að loka. Eftir það fór ég í endurhæfingu sem var mér nauðsynlegt enda skilur neysla mann eftir með mjög laskað taugakerfi. Ég hef eytt formúgu í sálfræðiþjónustu sem er ekki á allra færi, því miður, en er nauðsynlegt fyrir mig til að vinna úr áföllum. Í dag sé ég skýr tengsl milli áfallastreitu, meðvirkni, athyglisbrests og fíknisjúkdóma. Lykillinn að bata mínum í dag er að fylgja innsæinu, biðja um hjálp, hlusta á þarfir mínar, vera með skýr mörk og sjálfsvirði sem ég set ekki í hendur annarra og nærandi tenging við annað fólk. Ég finn fyrir gríðarlegu þakklæti og hlakka til að halda áfram að vera edrú og fá að upplifa skýrt þetta fáránlega fyndna, fallega og sorglega ferðalag sem lífið er. Ég vona að ég fái að halda áfram að vaxa og þroskast og vera í ljósi og sannleika og geti verið til staðar fyrir aðra.“

Dóra fór í langtímameðferð í Svíþjóð eftir árangurslausar tilraunir á Íslandi. Hún sagði frá baráttunni við alkóhólisma í viðtali við DV árið 2020.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?

Pink sögð skilin við eiginmanninn til 20 ára og bregst reið við – „Mynduð þið vilja segja börnunum okkar frá þessu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans

Dómari skipaði leikaranum að fara í meðferð eftir nýjasta uppátæki hans
Fókus
Fyrir 3 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins

Raunveruleikastjarnan kveður niður þrálátan orðróm um kynhneigð eiginmannsins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár

Prófessor í HÍ líkir áhyggjum af slaufun við siðfár