Sydney, sem er 26 ára, er rísandi stjarna í kvikmyndaheiminum og hefur þegar vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í þáttunum Euphoria og The White Lotus.
Leikarar eiga stundum erfitt með að stýra umræðunni um sig og bendir Sweeney á það í viðtali við Glamour að eitt af því sem fer í taugarnar á henni sé umræðan um brjóstin á henni.
Sweeney hefur aldrei gengist undir aðgerð á brjóstum og er með náttúrulega stór brjóst. Þar af leiðandi vekur klæðaburður hennar stundum athygli og segir hún að konur með lítil brjóst geti komist upp með meira í klæðaburði en konur með stór brjóst.
„Til dæmis þegar kemur að myndum sem teknar eru á rauða dreglinum þá segja fjölmiðlar til dæmis: „Sydney Sweeyney sýnir barminn“ eða „Sydney í djörfum kjól“.
„Ég er bara í nákvæmlega eins kjól og aðrar konur hafa verið í! Ég er bara með stór brjóst! Og ef einhver önnur kona með minni brjóst klæðist svona kjól þá eru þær svo dannaðar!“
Sydney segist elska brjóstin á sér og hún er alls ekki feimin við að sýna það. Það er reyndar af sem áður var því hún íhugaði alvarlega að láta minnka á sér brjóstin þegar hún var 18 ára.
„Mamma sagði mér að gera það ekki vegna þess að ég ætti eftir að sjá eftir því. Ég er mjög ánægð að hafa ekki gert það. Ég elska þau, þau eru bestu vinir mínir.“