fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Fókus

Upplifir mesta sjálfstraustið í miðjum samförum og segir þetta ástæðuna

Fókus
Miðvikudaginn 20. september 2023 20:00

Demi Lovato.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Demi Lovato segist aldrei upplifa meira sjálfstraust heldur en á meðan hún stundar kynlíf. Þar geti hún lagt allt til hliðar og verið meira í núinu. Hún afhjúpaði þetta í hlaðvarpinu LadyGang á dögunum.

„Ég hugsa að þetta sé vegna þess að þar er ég svo mikið í núinu að ég hugsa ekkert um hvernig lífið er annars að ganga og það sem vanalega hvílir þungt á manni yfir daginn. Eða þannig er þetta fyrir mér, kannski er það ekki svo fyrir alla.“

Demi á sem stendur í sambandi við tónlistarmanninn Jute$, en þau fóru að stinga saman nefjum seinasta sumar. Demi  hefur greint frá því að hafa aldrei verið ástfangnari og segir kærastan vera gífurlega glæsilegan, kynþokkafullan og hæfileikaríkan.

„Ég  hef beðið allt mitt líf eftir að finna þig og ég get ekki beðið eftir að fá að fagna svo mörgum afmælum í viðbót. Þú ert draumur sem rættist og ég er þakklát að geta kallað þig minn,“ skrifaði hún á Instagram í tilefni afmælis ástmannsins.

Demi vakti athygli í síðustu viku þegar hún greindi frá því að henni hafi tekist að yfirbuga „pabbavandamál“ sín eftir að hafa ítrekað átt í ástarsamböndum við eldri menn. Þegar hún horfi til baka þá veki það með henni óhug að þessir eldri menn hafi sótt í mun yngri konu, og ætli hér eftir að halda sig við karlmenn á hennar aldri og helst ætli hún að halda sig við Jute$ sem hún vonast til að giftast í náinni framtíð.

„Ég tel að þegar fólki tekst að finna einhvern sem lætur það upplifa öryggi, sem það laðast að, sem það hlær með – þá sé það uppskriftin að virkilega góðu sambandi.“

PageSix greinir frá

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Barnastjarnan opnar sig um erfiðleika síðustu ára

Barnastjarnan opnar sig um erfiðleika síðustu ára
Fókus
Í gær

Bókin sem Fanney segir að allir ættu að lesa – „Hún fær fólk til að átta sig á hvað það raunverulega vill út úr lífinu“

Bókin sem Fanney segir að allir ættu að lesa – „Hún fær fólk til að átta sig á hvað það raunverulega vill út úr lífinu“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Rýfur þögnina um samstarfið með Walton Goggins

Rýfur þögnina um samstarfið með Walton Goggins
Fókus
Fyrir 2 dögum

Versta martröð Victoriu Beckham orðin að veruleika

Versta martröð Victoriu Beckham orðin að veruleika
Fókus
Fyrir 3 dögum

Manst þú eftir „fallegustu stúlku veraldar“? – Svona lítur hún út 14 árum seinna

Manst þú eftir „fallegustu stúlku veraldar“? – Svona lítur hún út 14 árum seinna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Rihanna ólétt og frumsýndi kúluna fyrir Met Gala

Rihanna ólétt og frumsýndi kúluna fyrir Met Gala