fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Fókus

Pétur Örn biðst afsökunar á hegðun sinni – „Ég sé eftir þessu og harma það mjög að hafa sært viðkomandi“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 20. apríl 2023 16:47

Pétur Örn Guðmundsson Mynd: Stefán/Fréttablaðið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pétur Örn Guðmundsson tónlistarmaður segist hafa notað síðastliðið ár í mikla sjálfsskoðun og leitað aðstoðar fagmanneskja til að vinna í sjálfum sér með aðstoð sálfræðings og prests. Segir hann það hafa verið rangt og dómgreindarleysi að hefja samband á sínum tíma með sér yngri konu og harmi hann mjög að hafa sært viðkomandi.

Söngkonan Elísabet Ormslev opnaði sig í febrúar í fyrra í einlægu viðtali við Fréttablaðið um samband þeirra, sem hófst þegar hún var 16 ára gömul og Pétur Örn 38 ára. Sagði hún samband þeirra hafa einkennst af andlegu ofbeldi og umsátri og Pétur Örn hafa „groom-að“ hana á þeim tíma. Löngu eftir að sambandinu lauk hafi Pétur Örn haldið áfram að sitja um hana og valda henni ónæði, en Elísabet er fyrir nokkrum árum komin í nýtt samband og á ungt barn. Elísabet nefndi hann ekki á nafn í viðtalinu við Fréttablaðið, en í kjölfarið var Pétri Erni vísað úr hljómsveitunum Buff og Dúndurfréttum.

Í hlaðvarpinu Eigin Konur ræddi Elísabet frekar um sambandið og var Pétur Örn nefndur á nafn í lýsingu þáttarins. Elísabet sagði hann hafa brotið á fleiri konum og hún sjálf búin að fá skilaboð frá nokkrum þeirra.

Sjá einnig: Elísabet segir fleiri þolendur hafa leitað til sín – „Allar voru á aldrinum 16 til 19 ára þegar hlutirnir áttu sér stað“

Sjá einnig: Helga Möller lætur ofbeldismanninn heyra það – „Þessi fárveiki, siðblindi maður og fjölskylda hans, fær ekki tækifæri til að troða sér inn í hjörtun okkar“

Pétur Örn segist í færslu á Facebook-síðu sinni bera einn ábyrgð á gjörðum sínum og að það hafi aldrei verið ætlun sín að særa viðkomandi. Hann þakkar þeim sem hafa sýnt honum kærleik síðasta árið og segist ætla að halda áfram að vinna að því að verða betri manneskja.

Færsla Péturs Arnars í heild sinni:

„Ég hef undanfarið ár staðið í mikilli sjálfsskoðun og leitað aðstoðar fagmanneskja í að vinna í sjálfum mér með hjálp sálfræðings og prests.
Fyrir rétt rúmum þrettán árum kynnist ég ungri manneskju og náðum við vel saman og hófum að hittast. Það var rangt og dómgreindarleysi af minni hálfu og ber ég einn ábyrgð á þeirri ákvörðun. Samskipti okkar stóðu yfir í meira eða minna 11 ár með mislöngum stoppum og hléum. Ég sé eftir þessu og harma það mjög hafa sært viðkomandi. Það var aldrei ætlun mín og biðst ég innilegrar afsökunar á því.

Ég vil þakka þeim sem sýnt hafa mér kærleik og væntumþykju á þessu erfiða ári. Það er ekkert sjálfsagt að búast við því. Ég ætla að halda áfram að vinna í sjálfum mér og að verða alltaf betri og betri manneskja. Það er vinna sem ég mun vinna til æviloka.
Gleðilegt sumar, Ást og friður, Ykkar einlægur Pétur“

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson
Fókus
Í gær

Heima Heimaey, partýtryllir sumarsins!

Heima Heimaey, partýtryllir sumarsins!
Fókus
Fyrir 2 dögum

Mætti í fyrsta kynlífspartýið árið 2019 – Þetta eru helstu reglurnar

Mætti í fyrsta kynlífspartýið árið 2019 – Þetta eru helstu reglurnar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stebbi Hilmars búinn að fá nóg af orðinu „gaslýsing“ og leggur til fjölmörg önnur

Stebbi Hilmars búinn að fá nóg af orðinu „gaslýsing“ og leggur til fjölmörg önnur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ertu þyngri eftir helgina? – Þetta hefur Ragnhildur um það að segja

Ertu þyngri eftir helgina? – Þetta hefur Ragnhildur um það að segja
Fókus
Fyrir 4 dögum

Framferði stjörnunnar vekur athygli netverja – „Matthew, af hverju tekurðu svona mikið pláss?“

Framferði stjörnunnar vekur athygli netverja – „Matthew, af hverju tekurðu svona mikið pláss?“