Sumarhúsið Villa North, sem staðsett er í hinni vinsælu orlofshúsabyggð, Lundsskógi í Fnjóskadal, er til sölu. Ásett söluverð er 160 milljónir króna og er um að ræða dýrasta sumarhús landsins sem er í sölu, en það er þó í raun heilsárshús.
Eftirfarandi lýsingu á eigninni er að finna í tilkynningu frá Lind Fasteignasölu:
- Samspil hönnunar, lýsingar og útfærslu er tekið upp á hærra plan með einstakri útfærslu í bland við náttúru og glæsilegs útsýnis.
- Þetta glæsilega hönnunarhús er í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri um Vaðlaheiðargöng.
- Húsið er um 140 fermetrar að stærð, á tveimur hæðum. Gistirými er fyrir 9 manns.
- Mikið var lagt í hönnun hússins að innan sem og að utan ásamt allri lóðinni í kring.
- Hver einasti verkþáttur var unninn af löggiltu fagfólki.
- Húsgögn og innréttingar eru ýmist hönnunarvara eða sérsmíðað, allt sem sýnt er fylgir með við kaup á eigninni.
- Tæki eru af vönduðustu gerð og merkjum, þekkt merki sem passa vel við þann heildarstíl sem húsið er í.
- Öll kerfi (rafmagn, vatn og ljósastýring) eru allt fyrsta flokks.
Sett hefur verið upp sérstakt vefsvæði fyrir húsið og þar er hægt að sjá myndir, sjá staðsetningu og panta skoðun. Sjá nánar hér.
Húsið er eingöngu sýnt í einkaskoðun og hægt er að bóka skoðun hjá Hrannari fasteignasala í gegnum netfangið hrannar@fastlind.is
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali, sérhæfir sig í einmitt í sölu sumarhúsa.