fbpx
Laugardagur 27.desember 2025
Fókus

Peysa úr smiðju Prins Póló komin í verslanir

Fókus
Fimmtudaginn 1. desember 2022 14:04

Svavar Pétur lést í september en peysa úr smiðju hans er komin í verslanir og von er á nýju lagi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Haustpeysan í ár er flíspeysa, hönnuð af tónlistarmanninum og hönnuðinum Svavar Pétri Eysteinssyni, Prins Póló í samstarfi við 66°Norður og Havarí. Auk peysunnar er hægt að fá hlýja kórónu sem lýsir sannarlega upp skammdegið. Samhliða þessu góssi kemur út Haustpeysulagið 2022, Ég er klár. Lagið er eftir Svavar Pétur, textinn eftir Skarphéðinn Bergþóruson. Lagið er sungið af Valdimar Guðmundssyni, Prins Póló og Hriðinni. Hirðin tók að sér að klára verkefnið eftir að Svavar Pétur lést í lok september. Ágóði peysunnar rennur til Krafts, styrktarfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og minningarsjóðs Prins Póló. Peysan verður seld í verslunum 66°Norður, á Laugarvegi, Faxafeni og í netverslun.

Peysan er hin glæsilegasta

Saga Haustpeysunnar hófst fyrir um 10 árum og þá í formi viðburðar sem Svavar Pétur hélt á Óðinstorgi. Innblásinn af einni af sinni uppáhaldshljómsveitum, Yo La Tengo og laginu Autumn Sweater, bjó hann til Facebook-viðburð með nokkurra klukkutíma fyrirvara sem snerist um að fá fólk til að mæta á torgið í sinni uppáhalds haustpeysu. Um 10 mættu í fallegum haustpeysum og gáfu hvort öðru fimmu.

Þessi fallega stund sat í Prinsinum sem ákvað að endurvekja Haustpeysuna árið 2021. Eins og honum var von og vísa þurfti aðeins að bæta í og hannaði hann sína eigin haustpeysu í samstarfi við fatahönnuðinn Sigrúnu Höllu Unnarsdóttur. Peysan var seld í takmörkuðu upplagi og framleidd af prjónaverksmiðjunni Glófa. Haustpeysulagið í fyrra var falleg ábreiða af laginu Autumn Sweater í flutningi Björns Kristjánssonar, Borko.

Eins og í fyrra, verður Haustpeysufögnuðurinn haldinn á Fjölskyldukaffihúsinu Dal í Laugardal, sunnudaginn 11. desember og eru öll hvött til að mæta í sinni fegurstu haustpeysu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Þess vegna áttu helst að borða hafragraut alla morgna

Þess vegna áttu helst að borða hafragraut alla morgna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Jólakynlífið sem tryggir þér pláss á óþekka listanum

Jólakynlífið sem tryggir þér pláss á óþekka listanum
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Öðruvísi“ jólamatur – Djásn hægeldunar, tákn eftir grænkeraföstu og fiskurinn í baðinu

„Öðruvísi“ jólamatur – Djásn hægeldunar, tákn eftir grænkeraföstu og fiskurinn í baðinu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Missti tönn í jólaleik sem „fór úrskeiðis“

Missti tönn í jólaleik sem „fór úrskeiðis“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Málið loksins útkljáð – Die Hard er ekki jólamynd

Málið loksins útkljáð – Die Hard er ekki jólamynd
Fókus
Fyrir 5 dögum

Florence Pugh sér eftir því að hafa leikið í kvikmynd Íslendings – „Ég var ung og vantaði pening“

Florence Pugh sér eftir því að hafa leikið í kvikmynd Íslendings – „Ég var ung og vantaði pening“